Elva Ósk fermir dóttur sína 24. febrúar 2005 00:01 "
Ég er ekki að skilja öll þessi læti," segir Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona þegar hún er spurð hvort hún sé búin að öllu fyrir fermingu dóttur sinnar en hún fermist 19. mars næstkomandi. "Ég ætla að halda veisluna heima og undirbúningurinn gerist smám saman í rólegheitunum. Þetta vex mér ekki í augum enda verður bara gaman að fá gamlar og skemmtilegar frænkur í heimsókn. Ég vil að þetta verði dagurinn hennar og ég sé ekki að þetta verði eitthvað mál." Fermingabarnið, Agnes Björt Andradóttir, er hins vegar orðin afar spennt. "Ég er búin að hugsa um þetta síðan ég var lítil og nú er loksins að verða að þessu," segir Agnes Björt og bætir við að draumafermingakjóllinn sé prinsessu kjóll skreyttur pallíettum og púffi. "Við erum ekki búnar að finna fötin en hún fær alveg að ráða," segir Elva Ósk. "Ég man að þegar ég fermdist að þá var mikið lagt upp úr því að kaupa eitthvað praktískt enda notaði ég mín brúnu flauels jakkaföt mikið eftir fermingu en ef hún vill eitthvað ópraktískt þá gerir hún það," segir hún og heldur áfram að rifja upp fermingadaginn. "Ég skildi ekki allt þetta vesen. Allt í einu var ég orðin voðalega merkileg og ástæða þess að allt þetta fólk kom í veislu. Nokkrum vikum fyrir ferminguna höfðum við vinkonurnar ákveðið að lita á okkur hárið en kunnum ekki enskuna betur en svo að við settum festinn út í sem átti ekki að gera svo ég endaði með kolsvart hár, en ég hafði verið að safna ægilega fínu ljósu hári sem átti að setja upp í greiðslu. Á fermingardaginn var ég því með svo stutt hár að það lá við að líma yrði rósina svo hún myndi tolla." Lestu meira í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.
Menning Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira