Innlent

Ekki færri sólskinsstundir í 36 ár

Ágústmánuður var nokkuð í meðallagi á suðvesturhorni landsins en blautur og frekar kaldur norðanlands. Sólskinsstundir í ágústmánuði á Akureyri hafa ekki verið jafnfáar í 36 ár. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands kemur fram að meðalhitinn í Reykjavík mældist 10,5 gráður sem 0,2 gráðum yfir meðallagi. Á Akureyri var meðalhitinn 0,5 stigum lægri en í meðalári, og mældist hann 9,5 gráður. Úrkoma í Reykjavík var 72 mm sem er um 15 prósentum meira en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 74,2 mm og er það 218 prósent af meðallagi. Þetta er mesta mælda úrkoma í ágúst á Akureyri síðan 1992 en þá mældust þar 109 mm.  Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 168 og eru það 13 fleiri en í meðalári. Á Akureyri voru sólskinsstundir einungis 84 og eru það 52 færri sólskinsstundir en í meðalári. Þar hefur sólskin í ágúst ekki mælst minna síðan 1969 en þá mældust sólskinsstundirnar 75.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×