Segir nýja áætlun spennandi 21. janúar 2005 00:01
Þingmaður Frjálslynda flokksins segir það álitshnekki fyrir þingmenn Suðurkjördæmis að Árni Johnsen hafi frumkvæði að því að boða til borgarafundar um framtíð Vestmannaeyja. Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar segir nýja kostnaðaráætlun vegna jarðganga til Eyja spennandi. Árni Johnsen hafði frumkvæði að því að láta sænska verktakafyrirtækið NCC gera kostnaðaráætlun um jarðgöng til Vestmannaeyja. NCC telur sig geta borað jarðgöng fyrir um sextán milljarða króna sem er helmingi lægra verð en ráðgjafar Vegagerðarinnar hafa áætlað. Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, segir að honum finnist framlag NCC spennandi innlegg í þá umræðu sem hafi verið í gangi. Fyrst og fremst hafi verið birtar nýjar kostnaðartölur en ekkert nýtt sem snúi að tæknihlið verksins. Vegagerðin eigi eftir að sjá gögn NCC og því geti hann lítið sagt á þessu stigi. Hreinn segir kostnaðaráætlun NCC mun lægri en þær áætlanir sem Vegagerðin og ráðgjafar hennar hafi gert og ánægjulegt sé ef þetta sé verð fyrir jarðgangagerð á Íslandi í dag. Tölurnar séu mun lægri en Vegagerðarmenn hafi séð í öðrum verkum. Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir á heimasíðu sinni að það sé álitshnekkir fyrir þingmenn Suðurkjördæmis að Árni Johnsen hafi frumkvæði að því að boða til borgarafundar í næstu viku um samgöngumál og framtíð Vestmannaeyja. Magnús segir það gleðitíðindi ef hægt verði að bora göng til Eyja fyrir sextán milljarða. Hann gagnrýnir að ríkisstjórnin hafi ekki haft frumkvæði að því að kanna kosti vegtengingar við Eyjar og telur stjórnarflokkana skorta stórhug og framsýni varðandi málefni Suðurlands. Hnignun Vestmannaeyja sé skýrt dæmi um það.
Fréttir Innlent Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Fleiri fréttir Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Sjá meira