Innlent

Liðkað fyrir erlendu vinnuafli

Erfiðlega gengur að fá leyfi fyrir erlendu vinnuafli í störf sem Íslendingar vilja ekki vinna. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að úrbóta sé að vænta. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir ríkið hafa mörgum skyldum að gegna við að flytja inn fólk hingað til lands og því hægara sagt en gert að hleypa hér inn fólki án þess að gera nokkrar ráðstafanir. Gissur segir að ekki megi gleyma að um fólk sé að ræða en ekki einungis vinnuafl. Því sé að mörgu að huga eins og aðbúnaði, hugsanlegri íslenskukennslu, húsnæði og öðru sem lýtur að daglegu lífi og þjóðfélagsþáttöku. Gissur segir þó Vinnumálastofnun vera með í athugun um þessar mundir hvort ekki sé á einhvern hátt hægt að einfalda hlutina vegna gríðarlegs skorts og eftirspurnar eftir starfsfólki til að mynda í byggingarvinnu víðs vegar um landið, aðallega þó á höfuðborgarsvæðinu. Gissur segir Vinnumálastofnun hafa áhuga á að auðvelda fyrirtækjum að fá til sín starfsmenn af Evrópska efnahagssvæðinu og þar með að geta ráðið þá samkvæmt íslenskum reglum. Ekki er lagt í að svo gæti orðið. Gissur segist vona að þetta geti gerst allra næstu daga og verið sé að vinna að þessu í samvinnu við hlutaðeigandi stofnanir og ráðuneyti. Gissur segir ástæðu þess að brugðist sé við nú gríðarlegan skort á starfsfólki á ýmsum sviðum. Þegar svo mikil þensla sé, sérstaklega í byggingariðnaði og fleiri slíkum greinum, geti nokkrar vikur verið langur tími og verið sé að reyna að bregðast við gagnrýnisröddum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×