Innlent

Enn óljóst um eldsupptök á Ísafirði

MYND/NFS

Enn er óljóst hvað olli brunanum í tvíbýlishúsi á Ísafirði í gær þar sem karlmaður á sextugsaldri fórst. Tveir lögreglumenn frá Ríkislögreglustjóra komu til Ísafjarðar fyrir hádegi til að aðstoða lögregluna þar við að rannsaka eldsupptök. Að sögn varðstjóra á vakt er ómögulegt að segja til um hvenær rannsókn lýkur. Slökkviliðið á Ísafirði stóð vakt við húsið í alla nótt af ótta við að eldurinn gæti tekið sig upp aftur þar sem húsið er einangrað með eldfimum hefilsspónum en svo fór þó ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×