Ríkisútvarpið verður gert að hlutafélagi 6. desember 2005 06:45 Páll Magnússon útvarpsstjóri
Stóra breytingin frá því að frumvarpið var fyrst lagt fram í vor er að nú er gert ráð fyrir að Ríkisútvarpinu verði breytt í hlutafélag, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. Frumvarpið var kynnt í þingflokkum stjórnarflokkanna í gær og vonast Þorgerður Katrín til þess að geta mælt fyrir frumvarpinu áður en þingið gerir hlé á störfum sínum fyrir jól. Í upphafi var gert ráð fyrir að Ríkisútvarpið yrði sameignarfélag í eigu ríkisins en á því voru taldir ýmsir meinbugir. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir takmörkun á svigrúmi Ríkisútvarpsins til þess að taka þátt í öðrum rekstri, en slík ákvæði verða að að vera í lögum samkvæmt ábendingum frá Eftirlitsstofnun EFTA um aðskilnað samkeppisreksturs. Slíkur rekstur verður engu að síður að vera í tengslum við starfsemi ríkisútvarpsins þótt hann teljist ekki almannaþjónusta. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Þorgerður Katrín segir að skerpt sé á almannaþjónustuhlutverki RÚV í frumvarpinu. Í mínum huga er það alveg skýrt að veigamestu hlutverkin fyrir utan öryggishlutverkið eru fréttaþjónusta og menningarhlutverk sem snertir fyrst og síðast innlenda dagskrárgerð. Ég vonast til þess að með nýju fyrirkomulagi komi Ríkisútvarpið til með að styrkja sig enn frekar á því sviði. Fyrirséðar eru þær breytingar á rekstri RÚV að innheimtudeildin verði lögð niður enda gert ráð fyrir að það verði eftirleiðis fjármagnað með nefskatti en ekki afnotagjöldum. Réttur starfsmanna þar verður tryggður fram yfir breytingarnar og að öðru leyti verður vel séð fyrir réttindum starfsmanna, segir menntamálaráðherra. Gert er ráð fyrir að nefskatturinn greiðist af einstaklingum og lögaðilum. Ungmenni átján ára og eldri þurfa ekki að greiða þann skatt ef þau eru í foreldrahúsum og tekjur þeirra undir 855 þúsund krónum á ári. Lífeyrisþegar og öryrkjar verða undanþegnir skattinum. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Ríkisútvarpið Í frumvarpinu er gert ráð fyrir takmörkun á svigrúmi Ríkisútvarpsins til þess að taka þátt í öðrum rekstri. Þorgerður Katrín segir að niðurstaðan sé sú að taka Ríkisútvarpið ekki af auglýsingamarkaði að sinni, hvorki í hljóðvarpi né sjónvarpi. "Með breytingunum teljum við að tækifæri gefist til hagræðingar og betri nýtingar á fjármunum, segir menntamálaráðherra. Ég tek þessu mjög fagnandi. Þarna tel ég að sé verið að uppfylla annað skilyrðið fyrir því að Ríkisútvarpið geti í raun sinnt sínu hlutverki," segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Hitt skilyrðið er svo að tryggt sé að hlutafélaginu fylgi hlutafé svo það geti starfað.
Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Sjá meira