Innlent

Dreginn aflvana til hafnar

Línubáturinn Gefjun varð vélarvana tæpum tuttugu sjómílum utan við Skagaströnd um klukkan hálf ellefu í fyrrakvöld. Björgunarbáturinn Húnabjörg lagði af stað frá Skagaströnd um miðnætti og kom með línubátinn í togi til hafnar um klukkan fimm. Guðmundur Björnsson, björgunarmaður á Húnabjörg, segir að annar bátur hafi reynt að draga Gefjuni en án árangurs. Drátturinn tókst þó vel hjá Húnabjörgu þrátt fyrir leiðindaveður. Að sögn Guðmundar hefur Húnabjörg dregið fjölmarga báta til hafnar frá því hún kom til Skagastrandar í maí síðastliðnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×