Innlent

Ekkert lát á vanda í rækjuvinnslu

"Fyrir einu og hálfu ári voru átján rækjuframleiðendur hér á landi en nú eru þeir eitthvað um tíu," segir Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands. "Þetta hefur verið erfitt lengi og ég sé ekki fram á að ástandið eigi eftir að batna neitt á næstunni svo það er við því að búast að fleiri hætti," bætir hann við. Pétur nefnir þrjár ástæður helstar fyrir erfiðleikunum í rækjuframleiðslunni hér á landi: Kanadabúar hafa aukið mjög framleiðsluna og geta þess vegna boðið hana á mun lægra verði en Íslendingar, Færeyingar og Norðmenn en Pétur segir að kvótinn í Kanada sé byggður á markaðslegum grunni en ekki fiskifræðilegum. Einnig er framleiðsla á heitsjávarrækju í Tailandi, Suður-Ameríku og víðar farin að hafa verulega neikvæð áhrif á markaðina fyrir íslenska rækju. Þriðja ástæðan er svo hið margumrædda háa gengi krónunnar sem svo margir í útflutningsgeiranum hafa kvartað yfir að undanförnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×