Innlent

Komum standandi úr prófkjöri

"Þetta var frekar afgerandi niðurstaða. Ég er fyrst og fremst ánægð með að við skulum hafa komið standandi frá okkar fyrsta prófkjöri," segir Svandís Svavarsdóttir sem var kosin til þess að leiða lista vinstri grænna í komandi borgarstjórnarkosningum. Svandís kveður það spennandi tækifæri að fá að leiða listann. "Ég hef mikla trú á öllum tíu fulltrúunum á listanum," segir Svandís. Hún segir tímann vinna með vinstri grænum því nú hafi flokkurinn tækifæri til þess að styrkja sína kosningabaráttu í stað þess að bíða með prófkjör og skapa þannig hættu á innbyrðis átökum á lokasprettinum. "Auðvitað eru alltaf einhverjir sem höfðu hugsað sér að gera betur, hjá því verður ekki komist," segir Stefán Pálsson, formaður kjörstjórnar. Stefán segir sér hafa komið á óvart við talningu hversu ólíkir kjörseðlarnir voru. "Fólk virtist hafa gert upp hug sinn á mjög ólíka vegu og það leit ekki út fyrir að hópar hefðu tekið sig saman um hvernig skyldi kjósa," segir Stefán. Hann segir mikið af nýju fólki á listanum og því sé gott að hafa tíma til stefnu fram að kosningum. Þetta fólk fái svigrúm til þess að undirbúa sig fyrir hita leiksins. "Ég hefði viljað sjá meiri þátttöku í þessu prófkjöri," segir Árni Þór Sigurðsson sem situr í öðru sæti listans. Árni segir þó að þar sem forval sem þetta sé nýtt fyrir vinstri græna hafi ekki verið auðvelt að gera sé í hugarlund hvernig þátttakan yrði. "Ég held að þetta sé bara ansi góður listi."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×