Innlent

Tengsl foreldra og barna í hættu

"Þetta ástand hefur verið lengi svona," segir Ingimundur Sveinn Pétursson, formaður Félags einstæðra foreldra, og bætir því við að þó lítill eða enginn ágreiningur sé milli foreldranna getur mál þeirra samt sem áður tekið fjölmarga mánuði. Íslenska stjórnarskráin gerir ráð fyrir að allir hafi rétt á fjölskyldulífi, og því að fá úrlausn sinna mála innan hæfilegs tíma. Þó er staðreyndin sú að stundum tekur málaskak það langan tíma að fjölskyldulíf fer mikið úr skorðum, og þá er það oft sem annað foreldrið, yfirleitt faðirinn, hvorki heyrir né sér barn sitt mánuðum saman. "Þetta getur verið stressandi og sárt fyrir það foreldri sem er að missa af umgengni á meðan yfirvöld komast að niðurstöðu. Börn mynda tilfinningatengsl frá tveggja og upp í fimm ára, og ef verið er að hamla umgengi á þessum tíma þá getur það skemmt gríðarlega fyrir næstu átján árunum," segir Ingimundur, og bætir við að stundum verði tímalengd málaferlanna til þess að foreldrið sem ekki hefur umgengnisrétt hreinlega gefist upp og hætti að reyna að hafa samband við börnin sín.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×