Innlent

Einfaldari teikning

Leiðarkerfi strætisvagna hefur tekið á sig mynd neðanjarðarlestarkerfis á teikningu landfræðings. Hann segir teikningarnar miklu einfaldari og skiljanlegri en það kerfi sem notast er við núna. Forsvarsmenn Strætós og borgarstjóri eru þó ekki sannfærðir um það. Ingi Gunnar Jóhannsson Land- og iðnaðarverkfræðingur hefur hannað einfalda teikningu af hinu nýja leiðarkerfi Strætó, sem svipar mjög til teikninga af leiðarkerfum neðanjarðarlesta stórborga um allan heim. Ingi telur að borgarstjóra hafi litist ágætlga á teikninguna á fundi sem hann átti með henni. Ekki sé um að ræða nýtt kerfi heldur sé þetta ný teikning af leiðarkerfinu sem er í gangi núna. Að mati Inga hafi vantað teikningu að kerfinu sem að fólk skilur. Ingi er sannfærður um að sín teikning sé að öllu leyti einfaldari en þær sem fyrir eru. Eftir teikningunni geti hver sem er ratað hvert sem er og því sé hún betri en það sem er í dag. Ef Ingi nær ekki að gera sínar teikningar að opinberum teikningum fyrir leiðarkerfi Strætós, ætlar hann að gefa þær sjálfur út, svo að almenningur eigi þess kost að notast við þær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×