Stækkun kostar tæpan milljarð 7. október 2005 00:01
Tæpan milljarð króna kostar að stækka Bláa lónið. Framkvæmdir eru hafnar og er ráðgert að þeim ljúki vorið 2007. Vinsældir Bláa lónsins eiga sér nær engin takmörk. Nú skal haldið áfram að stækka aðeins sex árum eftir að nýja Bláa lónið var opnað. Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, segir að lagt verði út frá því að bæta umgjörð um þá þjónustu sem þegar sé sinnt í lóninu. Bætt verði við veitingasal sem sprengdur verði inn í berg á svæðinu. Þá verði verslunarrými stækkað og búnings- og baðaðstaðan endurhönnuð og stækkuð og síðast en ekki síst verði baðlónið stækkað um helming. Það verði orðið 7 þúsund fermetrar þegar stækkuninni verður lokið. Aðspurður hversu mikið stækkunin muni kosta segir Grímur að það verði um 800 milljónir króna þegar upp verði staðið. Grímur segir að reiknað sé með að um 350 þúsund manns heimsæki Bláa lónið í ár og þrátt fyrir að hátt gengi krónunnar hafi komið mjög illa við íslenska ferðaþjónustu virðist ferðaþjónustuaðilar þokkalega bjartsýnir á að ferðamenn haldi áfram að koma til Íslands og þeim muni jafnvel fjölga. Forsvarsmenn Bláa lónsins vilji því vera viðbúnir til þess að standa sína pligt í því efni. Framkvæmdirnar munu án efa auka enn hróður Bláa lónsins enda ætla forsvarsmenn þess sér ekkert annað en að halda toppsætinu yfir mest sóttu ferðamannastaði á Íslandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent VG og Sanna sameina krafta sína Innlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Innlent Fleiri fréttir „Ekki það sem fundurinn var að samþykkja“ Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Sjá meira