Eigendur beita sér ekki 7. október 2005 00:01
Kristinn Björnsson, stjórnarformaður Straums og fyrrum forstjóri Skeljungs, og nánasti frændgarður hans á stærri hlut í Morgunblaðinu en sem nemur hlut Baugs í 365 miðlum, sem meðal annars eiga Fréttablaðið. Kristinn er eiginmaður Sólveigar Pétursdóttur, forseta Alþingis, en saman eiga þau rúmlega 12 prósenta hlut í Árvakri, útgáfufélags Morgunblaðsins. Þá eiga þrjú eignarhaldsfélög í eigu náinna skyldmenna Kristins tæplega átta prósenta hlut í Árvakri hvert en þau eru í eigu þriggja barna Hallgríms Benediktssonar. Hallgrímur Benediktsson var föðurafi Kristins Björnssonar og eru eignarhaldsfélögin þrjú því í eigu Kristins og fjölskyldu hans í föðurætt og fjölskyldna tveggja föðursystkina hans. Baugur Group á stærsta hlutinn í 365 miðlum, sem reka meðal annars Fréttablaðið, DV, Stöð 2 og Bylgjuna, eða tæp 32 prósent. Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra, sakaði nýlega eigendur fjölmiðla á Íslandi um að misnota fjölmiðla sína. „Auðvitað er það svo að allir eigendur hafa áhrif á það sem þeir eiga," sagði hann að loknum síðasta ríkisstjórnarfundi sínum á dögunum. Fréttablaðið hafði samband við Kristinn Björnsson og spurði hann hvort hann, sem einn stærsti eigandi Morgunblaðsins, kannaðist við að eigendur beittu sér hvað varðar efnistök fjölmiðla sinna. „Ég hef aldrei orðið var við það." Jóhannes Jónsson, einn stærsti eigandi 365 miðla, segir að Baugi hafi aldrei dottið í hug að reyna að hafa áhrif á umfjöllun fjölmiðla 365. „Okkur hefur aldrei dottið það í hug. Þessi fjárfesting hefur aldrei verið hugsuð til þess að gæta hagsmuna okkar, nema fjárhagslega. Þetta er spennandi fjárfesting og það hefur sýnt sig að með góðu starfsfólki er hún er að skila sér," segir Jóhannes.
Fréttir Innlent Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira