Samningar náðust um endurreisn 7. október 2005 00:01
Samningar hafa náðst milli KEA, fjárfestingafélagsins Sjafnar og Sandblásturs og málmhúðunar um að félögin leiti leiða til að endurreisa rekstur Slippstöðvarinnar á Akureyri með samningum við þrotabú og aðra eigendur tækja og húsnæðis. Skiptastjóri búsins segir erfitt að segja til um hvenær samningar náist. Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, staðfesti þetta í morgun. Hann segir að reynt verði að hefja starfsemi í Slippstöðinni á allra næstu dögum. Hann segir ljóst að til að byrja með muni eingöngu hluti þeirra hundrað starfsmanna, sem sagt var upp hjá fyrirtækinu í byrjun vikunnar, fá endurráðningu hjá nýjum eigendum. Verkefnastaða sé ekki ljós ennþá og því þurfi að hnýta marga lausa enda áður en hægt verður að huga að því að endurráða alla starfsmennina hundrað. Benedikt útilokar þó ekki að svo verði. Kristján B Garðarsson, fyrrverandi forstjóri Kísiliðjunnar, hefur að sögn Benedikts verið fenginn til að leiða verkefnið fyrir hönd fjárfestanna þriggja. Samningar hafa einnig náðst milli hópsins og Hafnarsamlags Norðurlands um afnot nýrra eigenda Slippstöðvarinnar að upptökumannvirkjum stöðvarinnar. Sigmundur Guðmundsson, skiptastjóri þrotabússins, segir viðræður þegar hafnar um væntanlega sölu. Hann segir þó að þar sem stærstur hluti eignanna sé eign Stáltaks - húsnæði, lóðaréttindi og stærri tæki - sé það nýrra eigenda að semja við Stáltak líka. Að sögn Kristjáns B. Garðarssonar, sem leiðir nú viðræðurnar fyrir hönd hugsanlegra nýrra eigenda, eru viðræður við eigendur og þrotabú nú í fullum gangi og ekki hægt að segja með neinni vissu hvenær niðurstaða fáist í þær viðræður. Þorsteinn Haraldsson, fyrrum trúnaðarmaður starfsmanna Slippstöðvarinnar, segir lögmenn stéttarfélaganna hafa komið fram kröfum vegna vangreiddra launa þrotabúsins en ábyrgðasjóður launa muni væntanlega koma til með að greiða þau laun. Starfsmenn telja sig eiga jafnvirði 20 milljóna inni hjá þrotabúinu sem Þorsteinn segir að jafngildi þriggja vikna, og upp í mánaðarlaunum, hjá hverjum starfsmanni.
Fréttir Innlent Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira