Glettin skrif um tónleika 29. mars 2005 00:01
Fjallað er á glettinn hátt um tónleika Stuðmanna í Royal Albert Hall á skírdag í breska dagblaðinu Daily Telegraph í dag. Í grein sem ber yfirskriftina „Iceland the uncool," eða Hið ósvala Ísland, gerir höfundur greinarinnar, Thomas H. Green, góðlátlegt grín að sveitinni en segir að hún hafi svo sannarlega skemmt íslenskum áhorfendum í tónleikahöllinni. Green hefur greinina á að minnast á að sveitin hljóti að eiga valdamikla vini, eða eiganda Hamleys, sem hafi tekið tónleikahöllina á leigu. Hann segir enn fremur að þeir 1.500 Íslendingar sem verið hafi í Royal Albert Hall hafi kunnað að meta skemmtunina og tónlist Stuðmanna hafi verið glaðvær frá upphafi til enda. Þá hrósar hann Agli Ólafssyni og Ragnhildi Gísladóttur, aðalsöngvurum sveitarinnar, fyrir samvinnu sína. Blaðamanni er tíðrætt um skrýtinn klæðaburð hljómsveitarmeðlima á sviðinu og þá segir hann brandara Stuðmanna hafa farið fyrir ofan garð og neðan hjá Bretum en Íslendingar hafi kunnað að meta þá. Eftir hlé hafi áhorfendur algjörlega sleppt fram af sér beislinu og verið eins og unglingar á lokaballi. Þeir hafi tekið hressilega undir í Sísí fríkar út, sem höfundur segir eins og blöndu af knattspyrnusöng og stælingu á B52´s, og að sveitin hafi verið klöppuð upp fjórum sinnum af ánægðum Íslendingum. Hinir sem hins vegar hafi átt von á framúrstefnulegri tónlist sem Ísland hafi verið þekkt fyrir hingað til hafi eflaust verið skemmt en súrealísk lög Stuðmanna hafi átt mest sameiginlegt með hallærislegum lögum frá Evróvisjónkeppninni á áttunda áratugnum.
Menning Mest lesið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Lífið samstarf Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Fleiri fréttir Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Sjá meira