Félagsmálaráðherra braut alvarlega af sér 11. desember 2005 07:00 Árni Magnússon. Lögmenn segja brot félagsmálaráðherra á Valgerði alvarlegt. Fagna beri dómi Hæstaréttar. "
Augljóslega er þarna um að ræða alvarlegt stjórnsýslubrot eins og Hæstiréttur kemst að en vart er hægt að túlka niðurstöðuna þannig að ráðherra hafi einnig brotið jafnréttislög," segir Jónatan Þórmundsson lagaprófessor. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður er sammála Jónatan um að hæpið sé að komast að þeirri niðurstöðu að Árni Magnússon félagsmálaráðherra hafi sjálfur brotið jafnréttislög gagnvart Valgerði H. Bjarnadóttur þegar hann vék henni frá störfum sem framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Frá Hæstarétti Bæði Ragnar Aðalsteinsson og Jónatan Þórmundsson telja dóm Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn ríkinu góðan og vel rökstuddan. Allir fimm dómararnir hafi verið sammála og dómurinn sé fordæmisgefandi.fréttablaðið/gva Jónatan segir ábyrgð félagsmálaráðherra mikla. "Ráðherrar bera fulla ábyrgð á gjörðum sinna undirmanna. Dæmi eru um erlendis frá að þeir þurfi að víkja brjóti undirmenn þeirra alvarlega af sér. Í þessu tilfelli er málið enn alvarlegra því hér brýtur ráðherra sjálfur af sér. Hann er gerandinn í málinu og kýs að fela sig bak við umsagnir lögfróðra manna sem hann væntanlega fékk áður en hann tók þá ákvörðun að víkja Valgerði. En ég vil ekki um það dæma hvort um brot á jafnréttislöggjöfinni er að ræða líka. Hins vegar tel ég þennan dóm góðan og vel rökstuddan og fordæmisgefandi í framtíðinni." Ragnar Aðalsteinsson tekur undir orð Jónatans. "Dómurinn er að mörgu leyti sérstakur en ég fagna honum. Það sem ég hef meiri áhyggjur af er hversu auðvelt virðist vera að beygja fólk með valdníðslu. Valgerður er að mínu viti skörungur mikill og hefur langa og góða reynslu úr ýmsum áttum. Ef svona auðvelt er að beygja slíka manneskju þá óttast ég um alla hina sem ekki eru jafn hátt settir eða hafa slíka reynslu. Við Íslendingar erum alltof gjörn á að lúta valdi fólks sem er tímabundið kosið til að fara með völdin í landinu og furðulegt hversu lengi á að taka okkur að komast undan oki valdhræðslu við slíkt fólk." Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, vildi ekki tjá sig um hvort túlka mætti dóminn á þann veg að félagsmálaráðherra hefði einnig brotið jafnréttislög. "Við erum óhæf til að tjá okkur um dóminn eða afleiðingar hans. Valgerður er minn gamli yfirmaður og Árni Magnússon er minn núverandi yfirmaður og ég vil ekki tjá mig eða túlka dóminn með neinum hætti."Málið í hnotskurn Árið 2000 er Valgerður H. Bjarnadóttir skipuð framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu af félagsmálaráðherra.Árið 2002 tekur hún þátt í ráðningu nýs leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar en á sama tíma var hún einnig formaður stjórnar leikfélagsins.Sama ár kemst kærunefnd jafnréttismála að því að sú ráðning stangast á við lög og ári síðar kemst Héraðsdómur að sömu niðurstöðu.Í kjölfar dómsins fundar Valgerður með félagsmálaráðherra sem segist ekki bera traust til hennar lengur og óskar eftir að hún láti af störfum. Valgerður verður við beiðninni.Nokkrum mánuðum síðar kemst Hæstiréttur að því að leikfélagið hafði engin lög brotið og óskar Valgerður eftir skaðabótum vegna starfsloka sinna skömmu síðar.Á það féllst ráðherra ekki og fór málið fyrir héraðsdóm sem dæmdi ríkinu í vil.Áfrýjaði Valgerður málinu til Hæstaréttar sem kemst að því að henni beri að greiða sex milljónir króna í skaðabætur vegna starfsloka sinna.
Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fleiri fréttir Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis Sjá meira