Eitraður olíureykur bærist frá Örfirisey 13. desember 2005 03:30 Við slökkvistörf í Bretlandi. Slökkviliðsmenn börðust enn við elda í Buncefield olíubirgðastöðinni í London í gær og reyndu að kæfa eldana með sérstakri froðu. Hérlendis á fyrirtækið Olíudreifing mestar froðubirgðir og kom sér nýverið upp færanlegum slökkvibúnaði. "
Þetta slys í Bretlandi er alveg með ólíkindum," segir Björn Karlsson brunamálastjóri um brunann í Buncefield olíubirgðastöðinni í London um helgina. "En alls staðar er áhætta og erfitt að girða algjörlega fyrir möguleikann á stórslysi." Björn segir að í vor og næsta sumar verði farið í sérstakt átak tengt öllum 30 olíubirgðastöðum landsins, þær heimsóttar og æfð viðbrögð við eldsvoða. Þetta er gert í samvinnu Brunamálastofnunar og Olíudreifingar sem komið hefur sér upp færanlegum slökkvibúnaði en stærstu stöðvarnar hafa sínar eigin froðubirgðir. Í Örfirisey í Reykjavík eru Olíudreifing og Skeljungur með birgðastöð en þar segir Björn unnið eftir ítrustu viðbragðsáætlunum og uppfyllt skilyrði svokallaðrar Cevezo-Evróputilskipunar um hættumat í iðnaðarstarfsemi. "Reglugerðin hér kallar á að gert sé stefnumarkandi skjal með viðbragðsáætlun vegna óhapps, en hún er síðan kynnt slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og það fer reglulega út í Örfirisey og æfir með Olíudreifingu hluta viðbragðsáætlunarinnar." Björn segir að nákvæm áhættugreining vegna olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey hafi ekki farið fram. Þá væri reiknað út mögulegt tjón í verstu brunatilvikum eða hversu margir gætu mögulega skaðast. Hann segir þó ljóst að kæmi upp eldur í óhagstæðri vindátt færi svartur olíureykur yfir nálæga byggð. "Til dæmis hefði mest hætta myndast við Hringrásarbrunann ef vindur hefði staðið á Hrafnistu. En í slæmri vindátt gæti eitraður reykur farið yfir stórt svæði sem yrði að rýma í miðbæ Reykjavíkur." Gestur Guðjónsson, yfirmaður öryggismála hjá Olíudreifingu, segir brunann í Bretlandi vera áminningu. "Við erum ekki síður útbúin en Bretarnir voru og betur ef eitthvað er. Svo erum við með föst slökkvikerfi á geymunum" segir hann, en kveðst vitanlega bíða eftir nánari upplýsingum um hvað olli brunanum í Buncefield. "Sprenging eins og þarna varð finnst mér með ólíkindum."
Innlent Mest lesið Sektuð í gjaldfrjálsu stæði og sneri vörn í sókn Innlent Prestur á Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Sögð vafin í ísraelska fánann og veifað um eins og verðlaunagrip Erlent Sakar Weekday um stuld: „Hönnun sem ég er búin að vinna í í marga mánuði“ Innlent Síðasti fuglinn floginn Innlent Sótti kindabyssu eftir hótun um að skjóta fyrrverandi og fimm aðra Innlent Látinn eftir skotárás í Kaupmannahöfn Erlent Tæplega þúsund manns innlyksa á Everest Erlent Gekk berserksgang og beraði sig Innlent Símafrí en ekki símabann Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki á borði þingflokksins“ Umdeild brottvísun, fjárhagstjón á Grænlandi og kyngreint sæði Óttast áhrifin á vinnandi mæður Sakar Weekday um stuld: „Hönnun sem ég er búin að vinna í í marga mánuði“ Síðasti fuglinn floginn Sektuð í gjaldfrjálsu stæði og sneri vörn í sókn Ísrael sagt sig úr samfélagi siðaðra manna Símafrí en ekki símabann „Sjálfsíkveikja“ olli eldsvoða í þvottahúsi Síðbúnar hádegisfréttir Bylgjunnar: Áróður í Eurovision, nýtt landamærakerfi og „símafrí“ í skólum Sótti kindabyssu eftir hótun um að skjóta fyrrverandi og fimm aðra Leikskólamál, afnám hafta og Trump-isminn Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision Gekk berserksgang og beraði sig Prestur á Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Eldur í þvottahúsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ Sjá meira
Síðbúnar hádegisfréttir Bylgjunnar: Áróður í Eurovision, nýtt landamærakerfi og „símafrí“ í skólum