Fann fyrir nærveru ömmu 12. desember 2005 06:00 Fær mikla athygli. Unnur Birna gefur aðdáendum sínum eiginhandaráritanir á blaðamannafundi í Sanya í gær. "
Þetta var alveg ólýsanlegt," segir Unnur Birna, sem var enn í skýjunum þegar Fréttablaðið hafði samband við hana í gær. "Þegar ég var komin í sex stúlkna úrslit var ég voðalega hissa og átti alls ekki von á meiru. Svo var búið að tilkynna annað og þriðja sætið og þá var ég eiginlega bara búin að gleyma þessu. Svo bergmálaði "Iceland" um salinn og ég gjörsamlega missti andlitið," segir Unnur Birna og bætir því við að það sem við hafi tekið sé í hálfgerðri móðu. "Ég man varla eftir því að hafa staðið þarna og veifað. Eftir krýninguna tóku við myndatökur á sviðinu og svo dreif öryggisgæslan mig út í limósínu og ók mér upp á hótel. Þar var haldið sérstakt krýningarball með öllum stelpunum og fjölskyldum þeirra. Ég fékk að skreppa aðeins upp á herbergi til þess að átta mig og sat þar bara ein og hló. Í dag er ég líka búin að standa mig að því að skella upp úr annað slagið. Ég er ekki enn búin að ná þessu," segir Unnur Birna og bætir því við að það sé undarleg tilfinning að vera allt í einu orðin hálfgerð stjarna. "Það er gífurlegur áhugi á keppninni hérna í Asíu og ég á erfitt með að átta mig á öllu umstanginu. Ég fór á tvo blaðamannafundi í morgun og þangað var mér fylgt af fimm lífvörðum. Mér finnst þetta eitthvað svo fjarstæðukennt og átta mig ekki ennþá á því hvað þetta er allt saman stórt." Móðir Unnar Birnu, Unnur Steinsson, fylgdist með keppninni og Unnur Birna er ekki í nokkrum vafa um að amma hennar heitin, Jórunn Karlsdóttir, hafi einnig verið á svæðinu. "Kjóllinn sem ég klæddist í keppninni var upphaflega hannaður af ömmu og bæði mamma og ég höfum líka komið að saumaskapnum. Mér þótti ákaflega gaman að geta verið í þessum kjól og ég er viss um að amma var með mér þarna í gær. Ég fann virkilega fyrir henni. Það var svo góður andi yfir öllu og ég var alveg róleg," segir Unnur Birna. Fram undan eru spennandi tímar hjá Unni Birnu og í kjölfar keppninnar bíða hennar ýmis verkefni. "Við höfum ekki enn haft tíma til að setjast niður og fara í gegnum þetta en ég veit að það verður farið í svakalegan túr um heiminn. Ég mun heimsækja allar heimsálfurnar og kem ábyggilega til svona 100 borga. Keppnin gengur fyrst og fremst út á góðgerðastarf og næsta árið verður það mitt hlutverk að safna peningum til góðgerðamála víða um heim," segir Unnur Birna, sem ætlar þó ekki að láta keppnina hafa áhrif á öll framtíðarplön sín og stefnir á að halda áfram námi sínu í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. "Miss World-samtökin hvetja mig til þess að halda áfram námi og borga til að mynda öll skólagjöld fyrir mig. Ég ætla því að reyna að sinna skólanum eitthvað þótt það verði ef til vill ekki af fullum krafti." Unnur Birna verður í Kína fram á þriðjudagskvöld en þá fer hún til London þar sem hún mun dvelja í nokkra daga. "Ég veit ekki alveg hvenær ég kem heim en það er búið að lofa mér að ég fái að komast heim yfir jólin og áramótin. Þetta er búin að vera hörkuvinna bæði líkamlega og andlega og ég hlakka til að slappa af í faðmi fjölskyldunnar," segir Unnur Birna um leið og hún sendir kveðju til Íslands og þakkar fyrir allan stuðninginn sem henni hefur verið sýndur.
Innlent Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Innlent Fleiri fréttir Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Sjá meira