Ófaglærðir fá allt að 30 þúsundum meira 11. desember 2005 06:00 Björg Bjarnadóttir formaður Félags leikskólakennara mun krefjast hækkunar á launum félagsmanna sinna á fyrirhuguðum fundi með launanefnd sveitarfélaganna á næstunni.
Ófaglærðir deildarstjórar á leikskólum Reykjavíkurborgar munu hafa tæplega 200 þúsund króna hærri tekjur fyrir störf sín á ári en faglærðir deildarstjórar innan vébanda Félags leikskólakennara. Er þetta afleiðing nýrra samninga milli Reykjavíkurborgar annars vegar og SFR, Stéttarfélags í almannaþjónustu, og Eflingar hins vegar. Ársgamlir kjarasamningar við Félag leikskólakennara eru í uppnámi. Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, hefur látið hafa eftir sér að með þessu sé verið að sýna menntun lítilsvirðingu en fagnar því einnig að kjör ófaglærðra hafi batnað. Það megi þó ekki gerast með þessum hætti á kostnað þeirra sem hafa lagt á sig að mennta sig í faginu. Segir hún óánægjuna mikla meðal félagsmanna sinna. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Menntun lítils virði Með nýjum samningum Reykjavíkurborgar er verið að gera lítið úr þeim er mennta sig sem leikskólakennara að mati formanns Félags leikskólakennara. Fréttablaðið/GVA Munurinn er enn meiri sé litið til samninga borgarinnar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Ófaglærður deildarstjóri á leikskóla í því félagi er með 243 þúsund krónur í mánaðarlaun á meðan sambærilegur faglærður deildarstjóri í Félagi leikskólakennara er með 212 þúsund. Er það munur upp á rúmar 30 þúsund krónur á mánuði eða alls 360 þúsund yfir árið. Þó ber að hafa í huga að fólk innan SFR er með háskólamenntun þótt sú menntun þurfi ekki að tengjast kennaramenntun á neinn hátt. Félag leikskólakennara hefur þegar óskað eftir fundi við launanefnd sveitarfélaganna og segir Björg að þótt margir félagsmenn séu fjúkandi illir vegna þeirrar stöðu sem upp er komin sjái margir líka sóknafæri til að fara fram á frekari hækkanir á sínum eigin launum fyrr en áætlað var. "Ég persónulega er bjartsýn enda þykir mér ólíklegt að launanefndin geti litið framhjá því sem gerst hefur. Munurinn á þessum nýju samningum og okkar er einfaldlega út í hött og við munum krefjast leiðréttingar. Nákvæm dagsetning er ekki komin en ég á von á að það verði fljótlega."
Innlent Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira