Krefjast niðurfellingar Baugsmálsins 10. desember 2005 06:00 Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari segir það réttarfarslega afskræmingu að telja engan bæran til þess að taka stöðu ákæranda í málinu.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur öðru sinni sett Sigurð Tómas Magnússon sérstakan saksóknara í Baugsmálinu með það fyrir augum að taka af allan vafa um formlega stöðu hans til að fara með þann hluta málsins sem enn er rekin fyrir dómstólum. Með formlegum bréfaskriftum í vikunni skilaði Sigurður umboði sínu til ríkislögreglustjóra. Eftir það var ferlið endurtekið með formlegum hætti; Bogi Nilsson ríkissaksóknari tók við málinu á nýjan leik, sagði sig síðan frá því sökum vanhæfis og dómsmálaráðherra skipaði Sigurð Tómas á nýja leik með bréfi dagsettu 8. desember. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Héraðsdómur Reykjavíkur Í GÆR Sigurður Tómas saksóknari og Gestur Jónsson, verjandi í Baugsmáli, ræðast við. Fréttablaðið/E. Ól. Þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær gerðu verjendur sakborninga kröfu um að ákæruliðirnir átta, sem til meðferðar eru, yrðu felldir niður þar eð vafi hefði leikið á því að Sigurður Tómas hefði verið rétt skipaður saksóknari í málinu þegar það var tekið fyrir í nóvember síðastliðnum. Líta bæri svo á að enginn hefði mætt fyrir hönd ákæruvaldsins í réttinum og um ítrekaða útivist svonefnda hefði verið að ræða. Verjendur telja einnig að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sé vanhæfur til þess að skipa saksóknara í málinu og krefjast úrskurðar réttarins um hæfi hans. Loks telja verjendur að óheimilt sé að flytja rekstur málsins milli embætta í miðjum klíðum og vísa til þess að Ríkislögreglustjóri hafi verið búinn að gefa út ákærur þegar málið var flutt milli embætta. Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari, mótmælti því að ákærandi hefði í raun ekki verið til staðar í málflutningi í nóvember og útilokað væri að komast að því að ákærandi hafi ekki verið viðstaddur meðferð málsins oftar en einu sinni. Sagði hann það réttarfarslega afskræmingu að telja engan bæran til þess að taka stöðu ákæranda í málinu. Sækjandi og verjendurnir hafa áður lýst því að nauðsynlegt sé að skera úr um hæfi dómsmálaráðherra til þess að setja saksóknara í Baugsmálinu. Búast má við að héraðsdómur dæmi í málinu strax eftir helgi.
Innlent Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira