Með hausverk af eiturgufum 9. desember 2005 04:00 Hreinsibíll á götum Reykjavíkurborgar. Verið er að fóðra holræsi borgarinnar með pólýester. Það hefur valdið fjölskyldum erfiðleikum.
Húsmóðir með þrjú börn hefur búið við vonda lykt og slaka heilsu frá því síðastliðinn föstudag. Á þeim tíma hafa menn frá fyrirtækinu Hreinsibílum verið að fóðra skólplagnir við Nökkvavog þar sem hún býr. "Ég er búin að vera með höfuðverk, svima og ógleði síðan á föstudag. Ég hef verið virkilega áhyggjufull vegna þess hvaða áhrif þetta gæti haft á börnin mín," segir Anna Rúnarsdóttir. "Sá elsti sem er sex ára hefur aðeins kvartað yfir hausverk, sérstaklega þegar hann er í eldhúsinu en þar er veruleg plaststækja," segir hún. "Ég fór út að ræða við mennina sem voru að fóðra skólplagnirnar fyrir utan og einn þeirra tjáði mér að þetta ætti að vera meinlaust og að lyktin ætti ekki að berast inn til mín en gæti læðst upp þurrar lagnir," segir hún. Menn frá Hreinsibílum voru ekki að störfum um síðustu helgi en þá voru aðrir vinnumenn að eiga við niðurfallið og gerði þá einnig mikinn fnyk inni hjá Önnu. Á mánudaginn voru svo menn frá Hreinsibílum komnir aftur til starfa og mengunin hélt áfram. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Anna Rúnarsdóttir og Marteinn Ingi Ólafsson Þau mæðgin hafa þurft að glíma við ógleði, höfuðverk og önnur óþægindi í allmarga daga vegna framkvæmda í götunni. Þetta er eitt af mörgum tilfellum sem Fréttablaðið hefur greint frá. Fréttablaðið/Stefán Fréttablaðið hefur áður sagt frá nokkrum fjölskyldum sem hafa lent í sömu hremmingum vegna fóðrunarinnar. Gunnar Svavarsson, eftirlitsmaður hjá Línuhönnun, sem hefur eftirlit með þessu verki, sagði í Fréttablaðinu í gær að í tilfellum sem þessum væri skólplögnum í og við húsin um að kenna. Lúðvík Gústafsson, deildarstjóri mengunarvarna á umhverfissviði Reykjavíkurborgar, tók í sama streng og sagði að það væri á ábyrgð húseigenda að skólplagnir við hús þeirra væru í lagi en ekki borgarinnar. Anna Rúnarsdóttir er ekki sátt við þetta. "Ekki geta þessir góðu menn sem vinna við að lagfæra ónýtar lagnir ætlast til þess að allir íbúðareigendur séu búnir að lagfæra skólplagnir í kringum hús sín. Þeir segja í Fréttablaðinu að allir séu látnir vita áður en þeir hefjist handa en ekki fékk ég neina svoleiðis tilkynningu. Svo segja þeir einnig að þeir séu teljandi á fingrum annarar handar sem hafi kvartað en þeir væru eflaust fleiri ef það væri ekki svona erfitt að kvarta því hver vísar á annan og enginn getur sinnt kvörtununum," segir Anna.
Innlent Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira