Sjávarsíki að danskri fyrirmynd 27. nóvember 2005 10:00 Sjávarsíkið. Á rauðleitu reitina, beggja vegna síkisins, koma nýbyggingar en líklega munu þær ekki þekja reitina að fullu. Hafist verður handa við gerð síkisins strax á næsta ári en kostnaður því tengdu verður um hálfur milljarður króna.
Á næsta ári hefjast framkvæmdir við uppbyggingu miðbæjarins á Akureyri. Stefnt er að því að innan fárra ára verði hann þungamiðja mannlífs og menningar í bænum. Umfangsmesta breytingin er fólgin í gerð sjávarsíkis að danskri fyrirmynd, eins konar Nýhöfn, sem liggja mun frá Torfunefi að Skipagötu. Núverandi miðbær á Akureyri er byggður á landfyllingum en síkinu er ætlað að endurheimta þau nánu tengsl sem bærinn og Pollurinn höfðu fyrir tíma landfyllinga. Við framkvæmdina skapast nýtt rými í miðbænum sem liggur vel við sól, nýtur skjóls í norðanátt og tengir og opnar sjónlínu milli miðbæjar og sjávar. Veitingastaðir og kaffihús verða beggja vegna síkisins, sem er ætlað að laða að bæði bæjarbúa og ferðamenn. Samkvæmt tillögu sem hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegu hugmyndasamkeppninni um uppbyggingu miðbæjarins átti síkið að ná að Hafnarstræti, göngugötunni, en ákveðið var að stytta það um einn þriðja. Með því sparast um 800 milljónir króna í fjármunum og mikill tími því ella hefði þurft að rífa húsnæði Símans og endurbyggja fjarskiptasamband bæjarins við umheiminn. Kostnaður við gerð síkins og nauðsynlegar framkvæmdir tengdar því er áætlaður um hálfur milljarður króna. Á móti kemur að verðmæt byggingarsvæði verða til á bökkum síkisins og gera bæjaryfirvöld ráð fyrir að opinber gjöld vegna bygginganna sem þar rísa muni dekka allan kostnað við gerð síkisins. Vegna framkvæmdanna við síkið þarf að breyta lögnum veitukerfa í miðbænum og brúa Glerárgötu fyrir akandi umferð. Þar með verður til gönguleið á bökkum síkisins sem liggja mun undir Glerárgötu og að sjávarsíðunni þar sem menningarhús bæjarins mun rísa.
Innlent Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Sjá meira