Markús lofaði Jóni lóð í Kringlunni 23. nóvember 2005 03:30 Jón Ólafsson hefur látið að því liggja að Davíð Oddsson hafi haft þau áhrif á Markús Örn að hann fékk ekki umrædda lóð í Kringlunni. "
Jón vék að því í samtali við mig hvort Davíð Oddsson hafi komið nálægt málinu," segir Markús Örn Antonsson, sendiherra í Kanada. Jón Ólafsson athafnamaður hafði fengið vilyrði Markúsar Arnar Antonssonar, þá borgarstjóra, til þess að reisa kvikmyndahús á lóð við hlið Verslunarskólans í Kringlunni, árið 1992. Jón hefur sagst hafa heimildir fyrir því að Davíð Oddson, þá forsætisráðherra, hafi komið að málinu og tjáð Markúsi Erni vanþóknun sína á þeim gjörningi að Jón ætti að fá lóð undir kvikmyndahús í Kringlunni. Þessu til staðfestingar bendir Jón á að bréf frá Markúsi til Þorvarðar Elíassonar, skólastjóra í Verslunarskólanum, um málið sé týnt jafnvel þótt bókun sé til um tilvist bréfsins hjá skjalasafni Reykjavíkurborgar. "Strax í kjölfar útgáfu Jónsbókar leituðum við aftur að bréfinu, því okkur þótti náttúrulega ákaflega miður að þetta skyldi ekki finnast, og þá loks fundum við bréfið," segir Halla María Árnadóttir, forstöðumaður skjalasafns Ráðuhússins. Í bréfi Markúsar til Þorvarðar segir Marskús að hann "...vilji beina því til forráðamanna Verslunarskólans að nýta eftir því sem kostur er þá vinnu sem lögð var í undirbúning vegna fyrirhugaðs kvikmyndahúss. Að því væri örugglega hagræði." Markús segir að ekki hafi verið um neitt samráð milli sín og Davíðs um þessi lóðamál. "Þegar á hólminn var komið var ekkert sem benti til þess að Verslunarskólinn hygðist eiga þetta samstarf við Jón um verkefnið. Þetta staðfestist aldrei og Verslunarskólinn sótti æ fastar að fá þessa lóð undir starfsemi skólans," segir Markús. Hann bendir á að mikill stuðningur hafi verið við þá hugmynd að Verslunarskólinn fengi lóðina enda hafi stjórn borgarinnar talið sig hafa ríkum skyldum að gegna við menntastofnun sem þegar hafði komið sér fyrir á svæðinu. "Skömmu eftir þetta sá ég Jón á mynd með Davíð Oddssyni og fleiri forystumönnum Sjálfstæðisflokksins þegar Jón gaf út geisladisk fyrir flokkinn. Ég fékk ekki betur séð en að vel færi á með þeim félögum við þetta hátíðlega tækifæri," bætir Markús við.
Innlent Mest lesið Föst á Spáni næstu mánuði vegna meðgöngukvilla Innlent Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Refsing fyrir að reyna að myrða lækni þyngd Innlent Hátt spennustig um borð eftir að ísraelski sjóherinn hóf handtökur Innlent Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu Innlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Miklar breytingar á gjaldskrá leikskóla borgarinnar Innlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Erlent POTS-samtök fá lögfræðing í málið: „Margir eru rúmliggjandi í dag“ Innlent Fleiri fréttir Ragnhildur tekur við Kveik Blæs á sögusagnir um úthugsaða fléttu og ótti við að enda rúmliggjandi Vilja að fallið verði frá hækkun áfengisskatta „Þetta er auðvitað allt of lítið úrtak til að vera marktækt“ Refsing fyrir að reyna að myrða lækni þyngd Miklar breytingar á gjaldskrá leikskóla borgarinnar Nýr stjóri Icelandair vildi bara Airbus þegar hann stýrði Play Föst á Spáni næstu mánuði vegna meðgöngukvilla Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu Hátt spennustig um borð eftir að ísraelski sjóherinn hóf handtökur Bein útsending: Opnunarmálstofa Menntakviku - Kennaramenntun í deiglunni Hraðamyndavélar settar upp við Þingvelli Hjóla í forseta ASÍ og segja hann afvegaleiða umræðuna Býður sig fram til áframhaldandi formennsku Þúsundir barna bíða og listarnir lengjast POTS-samtök fá lögfræðing í málið: „Margir eru rúmliggjandi í dag“ Sveitarstjóri Mýrdalshrepps vill verða ritari Frelsisflotinn stöðvaður og árás á bænahús gyðinga í Manchester Styttist í lok rannsóknar Rúmlega þrjátíu skjálftar á Vesturlandi „Brotamenn eru nú ekki oft miklir borgunarmenn“ Heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Atvinnuþátttaka innflytjenda meiri en Íslendinga en fjárhagsstaða verri Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Sjá meira
Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu Innlent
Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu
Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu Innlent