Tíundi hver nemi haldinn átröskun 23. nóvember 2005 06:00 Rannsókn á átröskun í aldurshópum á framhaldsskólastigi hefur leitt í ljós að einn af hverjum tíu hefur einhver einkenni hennar. Fleiri stúlkur eru í þeim hópi heldur en drengir.
Frumniðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknir benda til að allt að einn af hverjum tíu nemendum í framhaldsskólum landsins sé haldinn átröskun eða hafi einhver einkenni átröskunar. Rannsóknina gerðu Guðlaug Þorsteinsdóttir geðlæknir og Lilja Ósk Úlfarsdóttir, doktor í sálfræði, en þær hlutu styrki meðal annars úr vísindasjóði Landspítala - háskólasjúkrahúss til að kanna faraldsfræði átraskana í framhaldsskólum á Íslandi. "Við gerð þessarar rannsóknar notuðum við nýlegan spurningalista sem gefur vísbendingar um sjúkdómsgreiningar," segir Guðlaug. "Í ljósi frumniðurstaðna sýnist okkur að átröskun af einhverju tagi sé algengari í aldurshópnum sem er á framhaldsskólastigi en við bjuggumst við. Listinn var lagður fyrir nemendur í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu, nágrannasveitarfélögunum og nokkrum skólum úti á landsbyggðinni. Stærsta úrtakið var af höfuðborgarsvæðinu." Guðlaug segir ekki hægt að fullyrða að unglingum á þessum aldri sem hafa einkenni um átröskun hafi farið fjölgandi þar sem ekki hafi verið gerðar aðrar sambærilegar rannsóknir. Hins vegar benda margar erlendar rannsóknir til að tilfellum átraskana, sérstaklega vægari tegunda, hafi fjölgað mikið á síðustu árum. Átröskun sé örugglega jafntíð hér á landi og á hinum Norðurlöndunum. Hún segir enn fremur að bæði sé um stráka og stelpur að ræða, en stúlkurnar séu þó mun fleiri. Lotugræðgi sé mun algengari en lystarstol. Þá sé þriðja tilbrigðið, blandaðar átraskanir, sem eru vægari tegundir átraskana, stærsti hópurinn. Þar sé um einstaklinga að ræða sem séu með megrunaráráttu, séu alltaf að reyna að létta sig, haldi í við sig með mat, jafnvel framkalli uppköst, noti hægðalyf eða megrunarlyf og hamist í heilsurækt. Í þetta fari mikill tími og orka. Ástæður átraskana geti verið fjölþættar en aukna tíðni megi trúlega fyrst og fremst rekja til mikils félagslegs þrýstings á tiltekna staðlaða útlitsímynd sem sé forsenda fyrir velmegun og hamingju. "Átröskun fylgir oft kvíði og þunglyndi og þessum einstaklingum líður illa," segir Guðlaug. "Það getur enginn verið fullkominn og þarna er verið að eltast við hið ómögulega í stað þess að leggja áherslu á líkamlegt heilbrigði og sterka sjálfsmynd. Fólk er mismunandi og allir hafa sín sérkenni, það geta ekki allir verið eins." Guðlaug undirstrikar að um algerar frumniðurstöður rannsóknarinnar sé að ræða og því beri að fara varlega með túlkun þeirra, þótt ákveðnar vísbendingar liggi fyrir.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri Sjá meira