Innlent

Hyggjast segja upp samningi við TR

Aukin eftirspurn eftir þjónustu sjálfstætt starfandi hjartasérfræðinga felst meðal annars í því að fólk lætur nú rannsaka heilsufar sitt í forvarnarskyni, í stað þess að eiga á hættu að þurfa að leggjast inn á spítala.
Aukin eftirspurn eftir þjónustu sjálfstætt starfandi hjartasérfræðinga felst meðal annars í því að fólk lætur nú rannsaka heilsufar sitt í forvarnarskyni, í stað þess að eiga á hættu að þurfa að leggjast inn á spítala.

"Það er einhugur meðal hjartasérfræðinga um að segja upp samningi við Tryggingastofnun ríkisins við óbreyttar aðstæður," segir Axel Sigurðsson, sem sæti á í stjórn Félags sjálfstætt starfandi hjartalækna. Á fundi hjartasérfræðinga fyrir helgi var meðal annars rædd sú staða sem komin er upp um einingakvóta sem samningur TR og sérfræðilækna kveður á um.

Þykir sýnt að læknisverk sérfræðilækna fari fram úr samningsbundnum einingafjölda sem nemur 200 milljónum á þessu ári. "Að óbreyttu er staðan sú að við fáum ekkert greitt það sem eftir er ársins," segir Axel. "Við getum ekki horft á það gerast aftur á næsta ári. En samningurinn í heild er til umræðu hjá samninganefndum Læknafélags Reykjavíkur og Tryggingastofnunar."

Axel segir að meðan læknar séu á samningnum megi þeir ekki rukka sjúklinginn um meira en hlut hans. Hlutur Tryggingastofnunar fæst ekki greiddur ef komið er yfir samningsbundinn einingafjölda. Ef læknar segja upp samningi þurfa þeir að gera það hver fyrir sig. Þá þurfa þeir að búa til eigin taxta, en að því er ekki farið að hugsa enn sem komið er. Væntanlega verði notaður sami taxti og nú en sjúklingurinn verður þá að greiða allan kostnaðinn við læknishjálpina.

"Okkur finnst afar vondur kostur að slíta þessum samningi," segir Axel. "En það er mikil samstaða meðal hjartasérfræðinga um að gera það ef ekkert breytist. En það er vilji beggja megin við borðið að finna einhverja lausn. Samningurinn hefur virkað vel þegar hann helst innan ramma. Þetta má ekki dragast fram yfir næstu mánaðamót, því menn geta ekki verið í þessari óvissu mikið lengur. Komi til þess að samningnum verði sagt upp tekur það ekki gildi fyrr en að þremur mánuðum liðnum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×