Dennis spillir Kúbuför barnakórs 15. júlí 2005 00:01
Ekkert verður af för Kórs Öldutúnsskóla til Kúbu þar sem mikil eyðilegging varð í landinu eftir yfirreið fellibyljarins Dennis á dögunum. Áætlað var að leggja af stað til Kúbu nú í morgunsárið, með viðkomu í París, og halda sömu leið heim eftir viku. Ytra stóð alþjóðlegt barnakóramót fyrir dyrum en hætt hefur verið við það. "Þarna varð mikill skaði, rafmagn fór af stórum hlutum bæja og borga og vatnslagnir og vegir í sundur," segir Egill Friðleifsson kórstjóri. Fjöldi híbýla eyðilagðist og heimilislausum var komið fyrir í hótelíbúðum í bænum Villa Olympia þar sem kórunum var ætlað að gista. Egill segir kórfélaga hafa vitaskuld orðið fyrir vonbrigðum enda tillökkunin mikil. "Undirbúningur ferðarinnar hófst í september og því mikið sjokk að ekkert verði úr. Peningasöfnun hefur staðið síðan í haust og ljóst að við töpum miljónum króna því ekki er hægt að tryggja sig fyrir náttúruhamförum." Hann segir fólk hafa tekið áfalllinu af stillingu og skynsemi og er þakklátur kórfélögum og foreldrum fyrir það. Sjálfur greip Egill til heimsfrægra og þrautreyndra Pollýönnuráða og þakkaði fyrir að kórinn var ekki á Kúbu þegar fellibylurinn gekk yfir. Utanferð Kórs Öldutúnsskóla hefur þó ekki verið slegin af með öllu því í sárabætur ætlar kórinn að fara í helgarferð til Parísar um næstu helgi. "Við erum ákveðin í að gera eins gott úr þessu og hægt er og ætlum að una okkur við söng og leik í París," segir Egill en meiningin er að syngja við sjálfan Sigurbogann sem heita má táknrænt fyrir hópinn. Egill hefur stýrt Kór Öldutúnsskóla í 40 ár og Kúbuferðin átti að verða hans tuttugasta, og um leið síðasta, kórferðalag. "Við höfum aldrei áður þurft að hætta við ferð en það hefur svosem ýmislegt komið uppá," segir Egill sem heimsótt hefur yfir 30 lönd í fimm heimsálfum með kórnum.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira