Ray Anthony maður 15. umferðar 25. ágúst 2004 00:01
Ray Anthony er fæddur árið 1979 og er uppalinn í Grindavík og hefur leikið nánast allan sinn feril með Grindvíkingum en spilaði reyndar sex leiki með Völsungum frá Húsavík, sumarið 1999. Hann er að læra netagerð en segir reyndar fótboltann taka mikinn tíma á sumrin. "Það snýst allt saman um fótbolta á sumrin," segir Ray og bætir því við að Grindvíkingar hafi stefnt hátt fyrir mót en það hafi ekki alveg gengið nógu vel framan af: "Við vorum bjartsýnir fyrir sumarið en byrjuðum mjög illa - vorum alls ekki að spila nógu vel og ekki þann bolta sem fer okkur best. Við erum gott sóknarlið og eigum að láta boltann ganga og forðast allar kýlingar og þesslags. Það býr ýmislegt í liðinu og ég fer ekki af því að ef við erum þolinmóðir og spilum sem ein heild þá séum við eitt af betri liðum deildarinnar. Við erum með algjöran klassaframherja sem Grétar (Hjartarson) er og þá er Keli (Sinisa Kekic) algjör kóngur hvar sem hann spilar á vellinum. Undanfarið hefur leikur liðsins verið á uppleið og sigurleikurinn á móti KR var gríðarlega mikilvægur en það verður að segjast eins og er að við erum orðnir leiðir á því að vera í botnbaráttu - viljum meira og við getum meira." Aðspurður segir Ray að það sé góður andi í kringum Grindavíkurliðið og það séu góðir menn sem standi á bak við það: "Stjórnarmennirnir eru bara alveg frábærir, fá ekkert borgað fyrir þetta en leggja sig samt alveg hundrað og tíu prósent fram fyrir félagið og það er alveg ómetanlegt. Það er nauðsynlegt að það sé góð stemmning í kringum félögin og að menn hafi gaman af því sem þeir eru að gera og sú er svo sannarlega raunin hér í Grindavík. Umgjörðin hérna er góð og í raun ekkert því til fyrirstöðu að liðið nái lengra" Þótt Ray sé bakvörður er það öllum ljóst sem séð hafa hann spila að honum leiðist ekki að sækja upp kantana og er án efa einn allra sókndjarfasti bakvörður Landsbankadeildarinnar. "Jú, jú, ég fæ oft að heyra þetta og menn eru að hvetja mig til að gera meira af þessu. Mér finnst mjög gaman að koma með í sóknina og er alveg óhætt að kalla mig framliggjandi bakvörð," segir hann og hlær. Ray hefur tekið framförum jafnt og þétt á sínum ferli og er án efa að spila sinn besta leik um þessar mundir. Telur hann sig eiga ennþá meira inni? "Já, ég á töluvert mikið inni," segir Ray og bætir við: "Maður er alltaf að öðlast meiri og meiri reynslu og þetta er allt að koma smám saman. Ef maður sleppur við meiðsli og er duglegur og metnaðarfullur getur maður alltaf bætt sig og að sjálfsögðu stefni ég að því. Það tekur alltaf sinn tíma að festa sig í sessi en það er hiklaust á dagskránni að koma enn sterkari til leiks næsta sumar og þá alveg frá byrjun." Aðspurður um vonir og væntingar í framtíðinni segir Ray drauminn auðvitað þann að komast í atvinnumennsku: "Maður vonast að sjálfsögðu til þess en það er erfiðara en margur heldur en en auðvitað þýðir ekkert annað en að halda í vonina," Aðalmálið núna er þó fyrst og fremst að tryggja sætið í deildinni og það kemst fátt annað að eins og stendur," sagði bakvörðurinn spræki úr Grindavík, Ray Anthony Jónsson, leikmaður 15. umferðar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Íslenski boltinn Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Golf Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Fótbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum Fótbolti „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Íslenski boltinn Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Körfubolti Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Fótbolti Fleiri fréttir „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Liðsfélagi Fanneyjar og Thelmu verður sú dýrasta í sögunni Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Varnarjaxl og varamaður tryggðu sínum þjóðum nauma sigra í nótt Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Dagskráin í dag: Sigdís þarf sigur „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Norðmönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Sjá meira