Hringbraut í opinn stokk 13. júní 2004 00:01
Tillagan felst í því að yfirborð Hringbrautar verði lækkað um þrjá til fjóra metra á um 600 metra löngum kafla sunnan Landspítala og Umferðarmiðstöðvar að áætluðum gatnamótum við Bústaðarveg og Njarðargötu. Þannig lægi umferðin í gegnum opin stokk sem mætti loka og byggja yfir ef byggingarétti yrði úthlutað við Hringbraut. Samtökin segja tillöguna falla hnökralaust að þeim framkvæmdum sem þegar eru hafnar og kosti ekki meira en núverandi framkvæmd. Hún bjargi hins vegar ellefu hekturum af landi að verðmæti ellefu milljarða króna, þegar allt er talið til. Nauðsynlegar breytingar á hönnun brautarinnar yrðu í lágmarki og myndu ekki hafa áhrif á meginframgang verksins. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkurborgar, segir að sér hugnist ekki tillagan. "Annað hvort er gatan í lokuðum stokk eða ofanjarðar eins og nú er. Það yrði mikið lýti á umhverfinu að hafa opinn stokk í götunni auk þess sem því fylgir slysahætta." Steinunn segir ennfremur að opnir stokkar þekkist ekki erlendis og telur hún að áætlun samtakanna um verðmæti landsins sé ofmat. Örn Sigurðsson, forsvarsmaður átakshóps Höfuðborgarsamtakanna segir að fullyrðingar Steinunnar séu ekki réttar. Opnir stokkar séu alþekktir og sem dæmi má nefna gjána í Kópavogi. Þá gefur hann lítið fyrir umhverfislýti og slysahættu stokksins. "Það er minni sjónmengun af götunni ef hún er grafin niður, hraðbrautir þykja ekki mikil prýði." Þá bendir hann á að það sé ekki minni slysahætta af hraðbrautum en opnum stokk. Örn segir ennfremur að áætlað verðmætamat sé síður en svo ofmat. "Þetta er samkvæmt stöðlum sem hægt er að reikna. Þá finnst mér undarlegt að ekki er hægt að fá borgaryfirvöld til að leggja mat á verðmæti byggingarlands. Allur röksemdaflutningur yfirvalda er byggður á öfugmælum og útúrsnúningum."
Fréttir Innlent Mest lesið Ísland verður ekki með í Eurovision Innlent Gummi Emil tekinn í skýrslutöku lögreglu Innlent Sæði með krabbameinsvaldandi genagalla selt til Íslands Innlent Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Innlent Úlfar þögull sem gröfin Innlent Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Erlent Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Innlent Síðasti loðdýrabóndinn segir Íslendinga verða að vakna Innlent Handtekinn á Akranesi grunaður um nauðgun Innlent Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Erlent Fleiri fréttir Selfoss dreginn til hafnar á Hjaltlandseyjum Reiknar með fljótri og góðri ákvörðun fyrir Ísland Óska eftir vitnum að banaslysinu á Vesturlandsvegi Kalla eftir sérstakri umræðu um málefni skólameistara og framhaldsskóla Ísland verður ekki með í Eurovision Tölvuárás á kerfi Grundarheimilanna Úlfar þögull sem gröfin Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Starfsmenn stefna Hval í samvinnu við fyrirtækið Viðgerð á Seyðisfjarðarlínunni muni taka tíma Hvalveiðimenn ætla í hart og örlög Íslands í Eurovision ráðast í dag Róbert vill leiða lista Viðreisnar í borginni Miðflokkurinn ekki undirritað siðareglur og mæting þingmanna sögð frjálsleg Handtekinn á Akranesi grunaður um nauðgun Slökkviliðsstjóri fer í fullt starf hjá almannavarnanefnd Fer ekki aftur fram fyrir Samfylkinguna Gummi Emil tekinn í skýrslutöku lögreglu Nærri 400 leitarbeiðnir vegna 95 týndra barna á árinu Bein útsending: Innflytjendur og samfélagið Aldrei planið að sækja um starfið sem aðrir hafi sótt um gagngert til að kæra Seyðisfjörður á varaafli eftir rafmagnsleysi í nótt Fjarðarheiði lokuð og óvissustig suðaustantil Sæði með krabbameinsvaldandi genagalla selt til Íslands Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Tvöföldun seldra nefúða á tíu árum: „Maður pantar töluverðar birgðir reglulega“ Kynna breytta Reykjavíkurleið eftir áramót Ræddu kílómetragjaldið í níu klukkustundir Síðasti loðdýrabóndinn segir Íslendinga verða að vakna Töluvert viðbragð vegna neyðarsendis sem fór af stað fyrir slysni Lagt til að hreindýrakvóti aukist hressilega Sjá meira