Enginn vilji til samkomulags 12. ágúst 2004 00:01
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, segir misskilnings gæta í orðum Gunnars I. Birgissonar, formanns bæjarráðs Kópavogs, í blaðinu í gær þar sem hann talar um árás Valhallar á sjálfstæðismenn í Kópavogi. "Í fyrsta lagi hef ég nú aldrei verið aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins," segir Vilhjálmur og áréttar að deilur sem risnar eru vegna neitunar borgarráðs á beiðni Kópavogs um lögn vatnsleiðslu um Heiðmörk komi Valhöll ekkert við. "Um er að ræða ágreiningsefni milli tveggja sveitarfélaga. Afstaða borgarráðs, þar á meðal mín og minna félaga, byggðist eingöngu á faglegri umsögn borgarlögmanns." Vilhjálmur tekur á hinn bóginn undir ummæli Sigurðar Geirdal, bæjarstjóra Kópavogs, um að deilan sé afturhvarf til fyrri samstarfsörðugleika sveitarfélaganna. "Ég tel í raun dapurt að R-listinn og meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs skuli ekki hafa náð samkomulagi um málið. Ég man þá tíð að borgarstjórnarmeirihluti sjálfstæðismanna í Reykjavík deildi hart við bæjarstjórn Kópavogs, þar á meðal bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, um skipulagsmál og réttarstöðu Reykjavíkurborgar í Fossvogsdal. Sú deila þótti ekki boða sérstök pólitísk tíðindi," segir Vilhjálmur. Hann segist hafa kallað sérstaklega eftir því í borgarráði hvort sáttaleiðin sé fullreynd í deilu bæjarfélaganna nú. "Ég fékk þau svör að búið væri að halda marga fundi og enginn vilji væri til samkomulags um málið." Vilhjálmur tekur fram að Gunnar Birgisson hafi ekki rætt málið við hann á fyrri stigum. Lögmaður Kópavogsbæjar hefur sett sig í samband við óbyggðanefnd og tilkynnt að von sé á erindi frá bænum vegna landskikans í Heiðmörk sem deilan snýst um. Sif Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri óbyggðanefndar, bendir á að í raun sé allt Suðvesturland til meðferðar hjá nefndinni og ekki liggi fyrir nákvæmlega um hvaða landskika sé verið að deila, eða hvort ríkið hafi gert kröfu í landið. "En það verður skoðað nánar þegar erindi berst frá Kópavogsbæ," segir hún.
Fréttir Innlent Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Fleiri fréttir Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Sjá meira