Innlent

Viðgerð ekki hafin vegna veðurs

Enn er ekki hægt að hefja viðgerðir á brúnni yfir Núpsvötn við Lómagnúp sökum veðurofsans að sögn Sveins Þórðarsonar, brúarverkstjóra á staðnum. Hringvegurinn er því enn lokaður við brúna sem skemmdist í veðurofsanum í morgun. Sveinn segir að þegar viðgerð geti hafist muni hún líklega aðeins taka 1-2 klukkustundir. Málmgrindur sem lagðar voru í brúna nýverið flettust upp þannig að yfirborð brúarinnar opnaðist.  Fleiri vegamannvirki létu undan veðurofsanum í morgun því að malbikið á veginum um Fróðárheiði flettist af á að minnsta kosti hundrað metra kafla og sást hvorki tangur né tetur af því á eftir. Veður er annars nokkuð farið að ganga niður um vestanvert landið samkvæmt upplýsingum frá vegagerðinni á þriðja tímanum. Á Austurlandi er orðið fært um Oddsskarð, Fagradal og Fjarðarheiði. Þá er verið að hreinsa um Vatnsskarð eystra til Borgarfjarðar eystri og um Möðrudalsöræfi. Á Mýrdalssandi er hins vegar enn nokkurt sandfok.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×