Annir hjá lögreglunni á Suðurlandi 2. júlí 2004 00:01
Miklar annir eru hjá lögreglunni á Suðurlandi en þangað liggur nú straumurinn frá borginni. Þar segjast menn vera viðbúnir öllu þessa helgi. Ríkislögreglustjóri hefur lagt til mannafla og tækjabúnað en öflugar öryggismyndavélar eru notaðar við löggæslu á landsmótssvæðinu á Gaddstaðaflötum. Þeir hafa líklega andað léttar, löggæslumennirnir á Suðurlandi, þegar fréttist að engin merki sjáist um gosóróa undir Mýrdalsjökli eftir skjálftann sem varð þar í nótt, á sama tíma og þeir bjuggu sig undir eina mestu ferðahelgi ársins. Þeir segjast þó vera með aðgerðaráætlun viðbúna komi til þess að frekari skjálftar ríði yfir, nú eða ef Katla lætur á sér kræla. Nú seinnipartinn var viðstöðulaus straumur bíla úr borginni um Suðurlandsveg og lögreglan telur að meirihluti fólks sem leggur land undir fót sé á leið til Þórsmerkur, að Skógum eða á Humarhátíð á Hornafirði. Langflestir beygja þó við afleggjarann að Gaddstaðaflötum þar sem Landsmót hestamanna er haldið. Þar er sprotin upp mörg þúsund manna byggð og viðbúnaður lögreglu er í samræmi við mannfjöldann. Um 30 manna lið frá ýmsum umdæmum er á svæðinu. Rólegt hefur verið að því frátöldu að 10 grömm af kókaíni og amfetamíni, og smáræði af öðrum fíkniefnum, fundust á mótssvæðinu í gærkvöld. Þar kom ein eftirlitsmyndavélanna að góðum notum.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Innlent Fleiri fréttir Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Sjá meira