Viðbótarhúsnæði fyrir skólana 2. júlí 2004 00:01
Bæta á við húsnæði Menntaskólans við Hamrahlíð, Fjölbrautaskólans í Ármúla og Flensborgarskólans í Hafnarfirði til að taka við auknum fjölda nýnema í framhaldsskóla næsta haust. Mismunandi lausnir eru áætlaðar fyrir hvern skólanna þriggja, segir aðstoðarmaður menntamálaráðherra. Skólameistari Fjölbrautaskólans í Ármúla segir lausu skólastofurnar ekki framtíðarlausn og ef ekki verði byggt við framhaldsskólana fyrir skólaárið 2005 verði vandræðin enn meiri en í ár. Sölvi Sveinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla, segir skólann ásamt Menntaskólanum við Hamrahlíð fá lausar skólastofur. "Þeir sem koma til okkar og upp í Hamrahlíð eru þeir sem höfðu sótt um einn skóla og annan til vara og höfðu komist inn í hvorugan." Sölvi segir að á mánudaginn komi í ljós hversu marga kennara þurfi að ráða til skólans. Það ráðist af fjölda nýrra nemenda. "Ef ég fæ eina stofu get ég tekið 25-30 nemendur en ef ég fæ tvær get ég tekið við 50-60 nemendum." Sölvi segir ekki um framtíðarlausn að ræða; á áætlun sé að byggja við fimm framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. "Ég reikna með að það verið byggt við einhverja af þessum skólum þannig að húsnæðið verði komið í gagnið næsta haust því það er annar stór árgangur að koma og fyrirséð að það verði enn meiri vandræði næsta haust ef ekki verður búið að bæta við húsnæði." Einar Birgir Steinþórsson, skólameistari Flensborgarskóla, segir yfirgnæfandi líkur á að skólinn fái húsnæði sem kallist Dvergur. Skólinn taki við 200 nýnemum sem séu 50 fleiri en áður hafi gerst. Þorri nýnemanna sé úr Hafnarfirði. "Núverandi skólahúsnæði er náttúrulega löngu sprungið," segir Einar. "Við höfðum áætlað að það gæti sinnt svona 560-570 krökkum en þeir verða 650 næsta haust. Með þessu viðbótarhúsnæði gengur það. Þröngt mega sáttir sitja." Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segir ekki ákveðið hvenig málin verði leyst í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þar komi nokkrir kostir til greina. "En eins og þetta er núna þá eru sama sem allir nýnemar komnir inn."
Fréttir Innlent Mest lesið Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Fleiri fréttir Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Sjá meira