Aldrei hlýrra í Reykjavík 11. ágúst 2004 00:01
Hitinn í Reykjavík náði 24,8 stigum í gær og er það hæsti hiti sem mælst hefur í höfuðborginni. Hlýjasti loftmassi síðan mælingar hófust, segja veðurfræðingar. Heitavatnsnotkun höfuðborgarbúa var sérstaklega lítil en notkun á köldu vatni lítið eitt meiri en venjulega. Hitinn í Reykjavík náði 24,8 stigum í gær og er það hæsti hiti sem mælst hefur í höfuðborginni. Gamla metið hljóðaði upp á 24,3 stig og var sett 9. júlí árið 1976 að sögn Björn Sævars Einarssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Hitinn á landinu í gær mældist hæstur 29,2 stig á Egilsstaðaflugvelli og jafnaði hæsta hita sem mældur hefur verið með nútímamælitækjum, á Kirkjubæjarklaustri árið 1991. Hæsti hiti sem lesinn hefur verið af mæli hér á landi var hins vegar 30,5 stig, á Teigarhorni árið 1939. "Þetta er hlýjasti loftmassi sem komið hefur hingað til lands síðan mælingar hófust," segir Björn Sævar en hitinn í gær fór víða yfir 27 stig. Áfram var svalast í þokulofti við Húnaflóa og í Skagafirði en lægsti hiti á landinu mældist 10,8 stig í Litlu-Ávík á Ströndum. Notkun Reykvíkinga á köldu vatni var lítið eitt meiri í hitanum í gær en hún er yfirleitt að sögn Sigurðar E. Sigurðssonar, vakthafandi vélfræðingsins hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Sigurður segir hins vegar heitavatnsnotkunina sérstaklega litla í veðurblíðunni í gær. Í gær notuðu Reykvíkingar um 2.300 rúmmetra af köldu vatni á klukkustund en venjuleg notkun er um 2.000 rúmmetrar að sögn Sigurðar. Heitavatnsnotkun Reykvíkinga í gær nam tæplega þrjú þúsund rúmmetrum á klukkustund sem Sigurður segir mjög lítið. Til samanburðar nefnir hann venjulegan júlídag á árinu og var notkunin þá ríflega fjögur þúsund rúmmetrar á klukkustund. "Ég býst við að aukinn þrýstingur myndist á að taka sumarfrí á þessum tíma og jafnvel til þess að vinnustöðum loki á heitustu svæðum," segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, aðspurður um áhrif góða veðursins á atvinnulífið. Ari segir ómögulegt að slá á hversu miklir fjármunir geti tapast við það að skrifstofur loki vegna veðurs. "Það má þó auðvitað gera sér í hugarlund að slíkir dagar hægi nokkuð á atvinnulífinu." Ari bendir þó á að margir hópar séu í þeirri aðstöðu að verða að leiða góða veðrið hjá sér. "Ég býst þó við því að allir sem aðstöðu hafa reyni í einhverjum mæli að njóta veðurblíðunnar."
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira