Sjúkrastarfsmenn hóta verkfalli 11. ágúst 2004 00:01
Sjúkrastarfsmenn við Kárahnjúka eru svo ósáttir við framkomu yfirmanna sinna hjá ítalska verktakafyrirtækinu Impregilo að þeir hafa hótað verkfallsaðgerðum ef ekki rætist úr hið fyrsta. Telja þeir að launaskrifstofa Impregilo dragi af þeim tíma hvern mánuð og því eigi þeir talsvert fé inni samkvæmt samningum. Illa gengur að fá bakvaktarálag greitt og margir þeirra eru ósáttir við aðbúnað sinn. Kvartanir sjúkrastarfsmannanna snúast að miklu leyti um það sama og margra annarra starfsmanna. Að launadeild Impregilo sem yfirfer alla vinnutímaseðla, sem öllum er gert að skila í hverjum mánuði, dragi frá tíma á hverjum degi sem svo safnast í talsverðar upphæðir. Þannig eigi þeir samkvæmt samningum að fá greidda tólf tíma hvern vinnudag en Impregilo fækkar um einn til tvo tíma hvern dag. Starfsmenn verða þannig af tekjum upp á 30 - 50 þúsund krónur hvern mánuð. Starfsgreinasamband Austurlands hefur haft fjölmörg mál af þessu tagi á borði sínu síðan í vetur en engin svör fengið hjá Impregilo um hverju þetta sætti. Var þar verið að undirbúa fjölda lögsókna á hendur Impregilo vegna þessa fyrr í sumar. Sjúkrastarfsmenn hafa valið að fara aðra leið og íhuga alvarlega að fara í verkfall en vilja bíða þar sem nýr yfirmaður er að taka við launadeild Impregilo og sá hefur ekki störf fyrr en eftir nokkra daga. Taki sá ekki vel í að laga kjörin er víst að blásið verði í stríðslúðra. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu þykir sjúkrabílafloti Impregilo ekki upp á marga fiska og hefur blaðið heimildir fyrir því að mörgum sjúkraflutningamönnum sé ekki um sel að þurfa að keyra bílana. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir virðist lítill vilji til þess hjá Impregilo að hafa sjúkrabílana í fullkomnu ásigkomulagi.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Sjá meira