Þurfum að hugsa um okkur sjálfar 9. nóvember 2004 00:01
Landsliðsárið byrjaði einnig í Egilshöllinni þegar 5-1 sigur vannst á Skotum í afdrifaríkum æfingalandsleik en fyrirliðinn og landsleikjamethafinn Ásthildur Helgadóttir sleit krossbönd í leiknum og hefur ekkert spilað síðan. Íslensku stelpurnar unnu síðan 5-0 sigur á Ungverjum í Ungverjalandi í undankeppninni í lok maí og tryggðu sér sæti í umspilinu þótt enn væru tveir leikir eftir, heimaleiki gegn Frökkum og Rússum. Íslensku stelpurnar náðu hinsvegar ekki að tryggja sér annað sætið því þær töpuðu báðum þessum leikjum og fá því afar sterka mótherja í umspilinu því Noregur hefur verið með eitt sterkasta knattspyrnulandslið heims undanfarin áratug. Helena Ólafsdóttir landsliðsþjálfari lítur bjartsýnum en raunsæum augum á verkefnið. "Þetta er frábært lið sem er búið að vera í fremstu röð til margra ára og þetta eru því engin aukvissar sem við fáum í heimsókn. Það er samt alltaf hægt að finna einhverja veikleika hjá liðum og við erum búin að vera að kíkja á spólur með þeim og reynum að nýta okkur það sem við teljum vera veikleika þeirra. Fyrst og fremst þurfum við samt að ná upp sjálfstrausti í okkar lið og stelpurnar þurfa að þora að framkvæma hluti á móti svona liði. Við þurfum því aðallega að hugsa um okkur sjálfar og hvernig við mætum í þennan leik," sagði Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu. "Það er pottþétt að áhorfendur gætu orðið okkar tólfti maður og ég vona fólk vilji koma og sjá svona toppleik því það er mjög gaman fyrir okkur að fá svona sterkt lið eins Noreg hingað til lands. Við vorum líklega með spennustigið of hátt í þessum haustleikjum gegn Frökkum og Rússum, í þessum leikjum sem skiptu máli. Síðan fórum við til Bandaríkjanna og mér fannst sú ferð nýtast okkur vel og nú tek ég mikilvægt fyrir okkur að byggja ofan á það dæmi og vona að stelpurnar séu klárar í þetta verkefni. Það er bara þessir leikir og stelpurnar gera sér alveg grein fyrir því. Við breytum engu í okkar leikstíl, spilum varnarsinnað og höldum okkar striki. Við erum að vinna og þróa leik liðsins. Við erum búin að spila fullt af leikjum á þessu ári sem er mjög gott og því hefur undirbúningur okkar verið góður. Þær sitja eftir riðlinum á eins litlum mun og hægt er og í rauninni fannst mér þær alveg geta komist áfram eins og Danir. Þetta er klassalið og voru óheppnar að vinna ekki sinn riðil og sleppa við þessa leiki. Þær eiga margar mjög frambærilegar fótboltakonur og þótt að liðið sé að fara í gegnum ákveðna endurnýjun þá er leikreyndasti leikmaður liðsins komin með 134 leiki en efst hjá okkur er að skríða í 50 leiki. Það er ekkert ómögulegt í fótbolta, við erum að spila tvo leiki í röð á stuttum tíma. Heimavöllurinn verður að nýtast okkur betur en hann hefur gert undanfarið og fari svo að við náum hér fínum úrslitum þá er allt opið. Þetta er spurning um að halda einbeitingu í 90 mínútur og jafnvel 95 mínútur og það ræður öllu," sagði Helena að lokum.
Íþróttir Mest lesið Tugir hlaupa af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Enski boltinn Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Enski boltinn Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Íslenski boltinn Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Íslenski boltinn Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Körfubolti „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Íslenski boltinn Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Körfubolti Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Fótbolti Fleiri fréttir Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Sunderland - Manchester United | Gæti jafnað met Henry og De Bruyne Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlaupa af stað í Bakgarðshlaupinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar hefst Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga „Þreytandi að þurfa að tala um dómarana“ „Held að við höfum ekki gert þetta áður“ Ólafur Ingi hundfúll „Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri“ Einum sigurleik frá Bónus deildinni Umfjöllun: Breiðablik - FH 3-3 | Sex marka jafntefli í Kópavogi Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Þór 6-0 | Nýliðar teknir í kennslustund Sjáðu frábæra innkomu Amöndu sem lét til sín taka Hræðileg en sanngjörn úrslit: „Við þurfum að vera aðeins stærri“ Sjá meira