Er að gera eitthvað rétt 9. nóvember 2004 00:01 "
Ég hef fengið að spila meira með liðinu en ég sjálfur átti nokkurn tíma von á á fyrsta tímabili og það hlýtur að þýða að Alfreð telji mig hafa eitthvað fram að færa," segir Arnór Atlason, handboltakappi með þýska liðinu Magdeburg. Þangað hélt hann í sumar eftir að hafa verið valinn handknattleiksmaður ársins hér á landi en þá lék hann með liði KA. Arnór fékk aðeins rétt nógan tíma til að þakka fyrir sig áður en hann hélt til Þýskalands til að spila með liði Magdeburg sem lengi hefur verið eitt toppliðanna í handbolta í Evrópu. Þar spilað hann reglulega með varaliði félagsins ásamt öðrum ungum og efnilegum strákum en auk þess hefur Arnór talsvert fengið að spreyta sig með aðalliðinu Hann segir himinn og haf milli Akureyrar og Magdeburg og það sama megi segja um muninn á atvinnumennsku og áhugamennskunni á Íslandi. "Munurinn er gríðarlegur hvert sem litið er. Hér eru æfingar tvisvar og stundum þrisvar á hverjum degi og þegar ég segi æfingar þá ber ekki að skilja það svo að það sé bara eitthvað sem menn gera milli leikja heldur eru æfingar teknar jafn alvarlega og leikirnir sjálfir. Það er virkilega tekið á því og algengt að harka færist í leik á æfingum. Þeir strákar sem hér spila líta á handboltann númer eitt, tvo, þrjú og fjögur. Fátt annað kemst að." Lið Magdeburg er Íslendingum ekki að öllu ókunnugt. Þjálfari þess er Alfreð Gíslason og auk Arnórs leikur með því Sigfús Sigurðsson og með Magdeburg lék Ólafur Stefánsson þegar hann var upp á sitt besta. Arnór segir það gefa sér byr í seglin að vita til þess að hann sé ekki einn á báti en á endanum sé allur árangur undir honum sjálfum kominn. "Ég viðurkenni að ég átti ekkert frekar von á að spila með liðinu fyrst um sinn en ég hef verið á bekknum í allnokkur skipti og alltaf komið inná. Í leik um daginn spilaði ég allan síðari hálfleikinn og það er það mesta sem ég hef enn fengið. Ég met það sem svo að ég sé að gera eitthvað rétt." Alfreð Gíslason, þjálfari, fær háa einkunn hjá Arnóri sem segir hann ná að draga það besta fram í hverjum og einum hvort sem menn kunna við hann persónulega eður ei. "Hann nær vel til allra með þeim hætti að þeir gefa sig allir í hvern einasta leik. Það er ekki eitthvað sem allir leika eftir enda ríkir gríðarleg ánægja með hans störf fyrir liðið hér um slóðir." Liði Magdeburg hefur gengið vel þetta tímabilið og er það í toppbaráttunni ásamt öðrum góðkunnum félögum á borð við Hamborg, Kiel og Flensborg.
Íþróttir Mest lesið Tugir hlaupa af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Enski boltinn Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Enski boltinn Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Íslenski boltinn Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Íslenski boltinn Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Körfubolti „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Íslenski boltinn Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Körfubolti Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Fótbolti Fleiri fréttir Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Sunderland - Manchester United | Gæti jafnað met Henry og De Bruyne Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlaupa af stað í Bakgarðshlaupinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar hefst Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga „Þreytandi að þurfa að tala um dómarana“ „Held að við höfum ekki gert þetta áður“ Ólafur Ingi hundfúll „Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri“ Einum sigurleik frá Bónus deildinni Umfjöllun: Breiðablik - FH 3-3 | Sex marka jafntefli í Kópavogi Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Þór 6-0 | Nýliðar teknir í kennslustund Sjáðu frábæra innkomu Amöndu sem lét til sín taka Hræðileg en sanngjörn úrslit: „Við þurfum að vera aðeins stærri“ Sjá meira