Flóttafólk fær 2.000 kr. á viku 9. desember 2004 00:01
Um síðustu áramót tók Reykjanesbær við umsjá fólks sem hér leitar hælis, en sú umsjá var áður á hendi Rauða kross Íslands. Sumir hælisleitenda þurfa að bíða nokkuð lengi eftir úrskurði Útlendingastofnunar varðandi hælisumleitanina, en sú breyting varð á um áramót að Reykjanesbær lét af greiðslu vasapeninga til fólksins, líkt og áður hafði verið tíðkað. Þessu mótmælti Rauði krossinn og benti á að fólk væri með þessu svipt sjálfsákvörðunarrétti með öllu. Eftir nokkra fjölmiðlaumfjöllun síðsumars var ákvörðun félagsþjónustu Reykjanesbæjar endurskoðuð og upplýsti Árni Sigfússon bæjarstjóri í ágústlok að fólk sem væri í langtímavistun fengi eftirleiðis vasapeninga ef á þyrfti að halda. Atli Viðar Thorstensen, verkefnisstjóri hjá Rauða krossi Íslands, segir að síðan í haust hafi á annan tug fólks notið vasapeningagreiðslna meðan úrskurðar Útlendingastofnunar er beðið. "Þetta er tvöþúsundkall á viku sem fólkið fær," segir hann, en til að fá greiðslur þarf fólk að vera hér í mánuð eða lengur. "Breytingin er mikil og þótt upphæðin sé ekki há er þetta þó eitthvað sem fólk fær yfir ráðið," segir Atli og bætir við að greiðslurnar séu í samræmi við það sem gengur og gerist í Svíþjóð. Það sem af er ári segir Atli að tæpir 70 hafi leitað hælis hér á landi. "Það er líklega fækkun frá því í fyrra," segir hann, en þá sóttu 80 manns um hæli. "Hámarkið var hins vegar árið 2002 þegar 117 manns sóttu hér um hæli."
Innlent Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira