Kaupmáttur launa rýrnar 12. júní 2004 00:01
Kaupmáttur almennra launa í landinu rýrnaði um 0,6 prósent frá árinu áður samkvæmt nýrri launaúttekt Kjararannsóknarnefndar á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Er þá miðað við sama tímabil árið 2003 en regluleg laun hækkuðu um 1,5 prósent á þessu tímabili. Vísitala neysluverðs hækkaði að sama skapi um 2,1 prósent og því rýrnar kaupmátturinn sem þessu nemur. Úrtak nefndarinnar er tæplega átta þúsund launþegar en á tímabilinu fékk aðeins lítill hluti þeirra launahækkun. Nýir kjarasamningar sem gerðir voru koma einungis að litlu leyti inn í þessar tölur nefndarinnar þar sem ósamið var við marga aðila fram eftir vori. Í úttektinni kemur fram að laun kvenna hækkuðu lítillega meira en laun karla eða um 0,1 prósent. Landsbyggðin heldur áfram að dragast aftur úr höfuðborgarsvæðinu um sem nemur 1,3 prósentustigum. Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, segir að áhrif kjarasamninga komi lítið inn í þessa könnun en ljóst sé að lítið þurfi út af að bera til að verðbólgan fari af stað. "Það skiptir höfuðmáli að halda aftur af verðbólgunni og þessi könnun ber það með sér að lítið þarf til. Það ber hins vegar að ítreka að áhrif þeirra samninga sem hafa verið gerðir undanfarið eru varla marktækir í þessari könnun. Þeir munu koma fram í næstu könnun og þá ættu að mælast þær almennu hækkanir sem fólk fær þar upp á 3.25 prósent." Kjararannsóknarnefnd kannaði einnig meðallaun fjögurra starfsstétta í landinu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Kemur þar í ljós að meðallaun fiskvinnslufólks voru rúm 136 þúsund krónur, iðnaðarmenn voru að jafnaði með 230 þúsund, afgreiðslufólk með 120 þúsund og skrifstofufólk með tæp 190 þúsund krónur.
Fréttir Innlent Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira