ILO gagnrýnir stjórnvöld 12. júní 2004 00:01
Þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, hefur staðfest niðurstöðu Félagafrelsisnefndar vegna kæru ASÍ um endurtekin afskipti stjórnvalda af gerð kjarasamninga. Kæran fólst í að lög á verkfall sjómanna vorið 2001 brytu gegn grundvallarsamþykktum ILO og þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands. "Í þessari ákvörðun ILO-þingsins felst mjög alvarleg gagnrýni á ríkisstjórn Íslands. Maður skyldi ætla að þegar íslenska ríkisstjórnin er gagnrýnd á alþjóðavettvangi, sem gerist ekki oft sem betur fer, hafi það þau áhrif að hún hugsi sig um áður en hún skiptir sér af gerð kjarasamninga með lagasetningu," segir Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur ASÍ. Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að hin raunverulega gagnrýni sé á samningsaðilana. "Að þeir skuli ekki hafa náð samningum í áraraðir er nánast einsdæmi, allar aðrar atvinnugreinar á íslandi hafa náð að semja sín á milli nema sjómenn og útvegsmenn. Verkfallið 2001 stóð í sex vikur áður en Alþingi greip inn í. Það var tvöfalt lengra en áður hefur verið og sýnir hversu treg við vorum að grípa inn í þessa deilu. Þetta undirstrikar nauðsyn þess að þessir aðilar semji sín á milli og hætti að treysta því að stjórnvöld skeri þá niður úr snörunni þegar þeir klúðra samningum sínum," segir Árni. Að sögn Magnúsar er um að ræða brot á tveimur mikilvægustu grundvallarsamþykktum ILO, en það eru samþykktir 87 og 98 sem fjalla um réttinn til þess að gera frjálsa kjarasamninga, verkföll og verkbönn og réttinn til þess að stofna og eiga aðild að verkalýðsfélögum og félögum atvinnurekenda.
Fréttir Innlent Mest lesið Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Fleiri fréttir Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent