Einhleypir karlar skulda mest 12. júní 2004 00:01
Alls fengu 823 fjölskyldur umsóknir sínar vegna greiðsluerfiðleika afgreiddar á síðasta ári hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, að því er fram kemur í ársskýrslu hennar fyrir árið 2003. Þetta eru heldur færri umsóknir en árið áður, en þá voru þær 835. Á árinu 2001 voru þær hins vegar miklum mun færri, eða 667. Stærstur hluti viðskiptavina Ráðgjafarstofunnar voru einstæðar mæður, eða þriðji hver umsækjandi. Þá fjölgaði einhleypum körlum og konum milli ára. Eru einhleypir karlar með mestu vanskilin, eða að meðaltali um 2,7 milljónir króna. Heildarskuldir þeirra voru að meðaltali 5,6 milljónir króna. Þar vega hvað þyngst meðlags- og skattaskuldir. Hjón með börn eru hins vegar með hæstu heildarskuldirnar, eða að meðaltali ríflega 14 milljónir. Vanskil þeirra voru að meðaltali 3,2 milljónir króna. Barnlaus hjón skulduðu að meðaltali 10,4 milljónir og voru með vanskil upp á 2,7 milljónir. Tæp 35% voru á aldrinum 31-40 ára, en næstfjölmennasti aldurshópurinn var 21-30 ára. Meðalaldur var 38 ár og með 168.000 krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði. Skuldir umfram eignir voru að meðaltali 3,3 milljónir króna. Fasteignaveðlán voru langstærsti hluti heildarskulda þeirra sem leituðu til Ráðgjafarstofu, eða rúm 58%. Næststærsti liðurinn voru önnur lán með persónuábyrgðum eða 27,2%. Skuldir vegna námslána voru 4,8% af heildarskuldunum. Þegar litið er til hlutfallslegrar skiptingar vanskila eftir tegund árið 2003 skáru tvær tegundir skulda sig úr. Annars vegar lán með persónuábyrgðum sem voru ríflega 30% af heildarvanskilunum. Ógreidd opinber gjöld komu næst í röðinni, en þau voru 27,8% af heildarvanskilum. Langalgengustu ástæður greiðsluvanda þeirra sem leituðu til Ráðgjafarstofunnar eru atvinnuleysi, tekjuminnkun og veikindi. Langflestir þeirra komu af höfuðborgarsvæðinu, eða 78,2%. það er þó heldur lægra hlutfall en á síðasta ári, en þá var 81% viðskiptavinanna af því landssvæði.
Fréttir Innlent Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Erlent Fleiri fréttir Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent