Íslenskir unglingar á réttri leið 14. desember 2004 00:01
Dregið hefur meira úr reykingum og drykkju ungmenna hér á landi en í öðrum Evrópulöndum. Þetta kemur fram í skýrslu Evrópuráðsins um vímuefnaneyslu unglinga. Sama könnun sýnir að notkun á sniffefnum hefur aukist jafnt og þétt hér á landi. Könnunin var gerð í 35 löndum og náði til um hundrað þúsund ungmenna, þar á meðal allra Íslendinga í aldurshópnum 15-16 ára. Niðurstöðurnar sýna að íslenskir unglingar standa sig vel þegar á heildina er litið. Til dæmis hefur stórlega dregið úr reykingum. Átján prósent íslensku unglinganna sögðust hafa reykt sígarettur fjörutíu sinnum eða oftar. Svarhlutfallið var hæst í Austurríki eða 42 prósent. Fjórtán prósent íslenskra unglinga sögðust hafa drukkið áfengi fjörutíu sinnum eða oftar. Dregið hefur orðið úr neyslunni hér á landi síðustu ár á sama tíma og hún hefur aukist víða í Austur-Evrópulöndum. Danskir unglingar koma verst út í þessum lið könnunarinnar. Þórólfur Þórlindsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir ljóst að Íslendingar séu á réttri leið í forvarnarmálum og að öflugt starf sem hófst árið 1998 sé farið að skila árangri. Áherslan hefur verið á að draga úr neyslunni í elstu bekkjum grunnskóla því þeir árgangar sem eru lágir í 10. bekk eru lágir áfram að sögn Þórlinds, og á það sérstaklega við um reykingar. Það kveður við annan tón þegar litið er á tölur um neyslu ólögreglegra vímuefna. Fjögur prósent íslenska stráka og stelpna sögðust hafa reykt hass á síðustu 30 dögum. Til viðmiðunar má geta þess að hlutfallið var eitt prósent í Svíþjóð og tuttugu og þrjú prósent á Spáni. Tólf prósent íslensku ungmennanna sögðust hafa notað sniffefni en það er mun hærra hlutfall en annars staðar Norðurlöndum. Til dæmis svöruðu einungis fimm prósent norskra unglinga spurningunni játandi. Þórlindur telur ástæðu til að hafa áhyggjur af þessari aukningu, sérstaklega í ljósi þess að sölumenn eiturlyfja eru sífellt að verða aðgangsharðari.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira