Tvöföld nýársgleði á Sögu 27. desember 2004 00:01
Á Hótel Sögu verður árlegur nýársfagnaður í ár samkvæmt venju en þetta er í 15. skipti sem hann er haldinn. "Það má eiginlega segja að við séum með tvo nýársfagnaði þetta kvöld," segir Hafsteinn Egilsson, veislu- og ráðstefnustjóri á Hótel Sögu. "Annarsvegar erum við með ´68-kynslóðina í Súlnasalnum, þar sem maturinn kostar 11.700 krónur, og þar bjóðum við upp á dúndur matseðil og frábæra skemmtun. Hins vegar er svo matur í Grillinu, sem meira er lagt í fyrir þá sem það vilja, en þar er átta rétta matseðill sem kostar 18.500 krónur. Ef menn vilja nýta sér þjónustu margfalds Íslandsmeistara í vínfræðum, Sævars Más Sveinssonar framleiðslumeistara þá er það líka í boði. Verðið hækkar þá upp í 24.500 krónur og vínið er innifalið. Sævar leiðir fólk í gegnum matseðilinn og velur eðalvín sem hæfir hverjum rétti." Hafsteinn segir að stemningin á Sögu þetta kvöld sé engu lík, frjálsleg og skemmtileg. "Menn eiga bara að vera þokkalega fínir, koma með góða skapið, njóta góðs matar og þjónustu og dansa svo fram á nótt," segir hann, en gestir úr báðum sölum sameinast í miklum stuðdansleik með Hljómum að loknu að borðhaldi. "Hátíðin, sem var til langs tíma kölluð hátíð ´68-kynslóðarinnar, hefur breyst með árunum og er nú orðin meiri blanda af yngra og eldra fólki úr öllum áttum sem skemmtir sér konunglega saman," segir Hafsteinn.
Mest lesið Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Lífið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Lífið Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker Lífið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Fleiri fréttir Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Sjá meira