Innlent

Beðið eftir strætó á klósettinu

Vegfarendur í Reykjavík hafa eflaust sumir tekið eftir því að búið er að "innrétta" tvenn strætisvagnabiðskýli á sérstakan hátt. Biðskýlið á Lækjargötu gegn Stjórnarráðinu lítur nú út eins og baðherbergi og biðskýlið á Miklubraut við Kringluna lítur út eins og eldhús. Starfsmenn Íslensku auglýsingastofunnar fengu hugmyndina þegar þeir voru að móta nýja auglýsingaherferð fyrir Húsasmiðjuna. Ekki er um eiginlegar innréttingar að ræða heldur hafa filmur með myndum af húsbúnaði verið límdar á skýlin. Einnig má heyra eldhús og baðherbergishljóð sitji maður í skýlunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×