Innlent

25 fikniefnamál á landsmótinu

Tuttugu og fimm fíkniefnamál komu upp á Landsmóti hestamanna á Hellu um helgina. Töluvert magn fannst af hvítu efni, smjörsýru, hassblöndu og sljóvgunarefnum auk þess sem nokkrar E-pillur fundust. "Mikil ölvun var á svæðinu en fyrir utan fíkniefnamálin komu engin stórmál inn á borð til okkar heldur minniháttar mál eins og smá pústrar og minniháttar líkamsmeiðingar. Þá hafa þó nokkrir gist fangageymslurnar hjá okkur um helgina sökum ölvunar og óspekta," segir Ingólfur Waage, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli. Á mótinu voru í kringum ellefu þúsund manns og var lögreglan á Hvolsvelli með töluverðan viðbúnað í tengslum við það um helgina og naut góðrar aðstoðar embættis Ríkislögreglustjóra og Sýslumannsins á Selfossi, Lögreglustjórans í Reykjavík og Sýslumanna í Hafnarfirði og Kópavogi. Einnig var öflugu fíkniefnaeftirliti haldið uppi af hálfu lögreglunnar, meðal annars af lögreglumönnum frá Ríkislögreglustjóra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×