Innlent

Hápunktur sumarsins

Um tvö hundruð manns voru á fyrstu sumarhátíð hjúkrunar- og endurhæfingaheimilisins Rjóðurs sem haldin var á laugardaginn. Til fagnaðarins var fjölskyldum barnanna sem þar dvelja boðið auk velunnurum Rjóðurs. Hljómsveitirnar Írafár og Land og synir spiluðu auk þess sem Birta og Bárður úr Stundinni okkar komu og skemmtu. Börnin sem dvelja á Rjóðri eru langveik eða fötluð og ríkti mikil gleði á meðal þeirra því hátíðin er hápunktur sumarsins fyrir þau.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×