Innlent

Vel heppnuð humarhátíð

Gestir á Humarhátíð á Höfn um helgina voru í kringum þrjú þúsund og heppnaðist hátíðin vel. "Þetta er fámennasta hátíðin en jafnframt sú vel lukkaðasta sem haldin hefur verið í langan tíma," segir Jón Garðar Bjarnason hjjá lögreglunni á Höfn. Hátíðin var að mestu leyti byggð upp fyrir fjölskyldufólk í ár og var það því í meirihluta á hátíðinni. "Við lentum í minniháttar ólátum hjá ungmennum aðfaranótt laugardagsins en það er allt og sumt. Á heildina litið fór hátíðin vel fram og geta Hornfirðingar verið stoltir og ánægðir með hana, " segir Jón Garðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×