Innlent

Betra verð til bænda

Sláturfélag Austur-Húnvetninga hækkaði verð á flestum flokkum nautgripakjöts til bænda núna um mánaðamótin, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda, www.naut.is. Hækkunin er þó sögð vera nokkuð misjöfn á milli flokka, en félagið nú sagt greiða að jafnaði hæstu verð allra sláturhúsa á Norðurlandi. "Sláturhúsið á Hellu greiðir þó enn hæstu verð landsins á alla algengustu flokka nautgripakjöts," segir á vefnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×