Rekaldið enn á sama stað 3. ágúst 2004 00:01
Rekald, sem sett var út til að kanna rek líksins af Sri Rahmawati, hefur ekkert hreyfst eftir að því var varpað fram af klettum í Hofsvík á Kjalarnesi fyrir tæpum sólarhring. Björgunarsveitarmenn unnu eftir nákvæmum leiðbeiningum sem Hákon Eydal hefur gefið lögreglunni um hvar og hvernig hann losaði sig við líkið af fyrrverandi sambýliskonu sinni, Sri Rahmawati, þegar þeir endursköpuðu aðstæður á vettvangi í gær. Í sænskan póstpoka settu þeir leðurjakka og fleiri föt sem Hákon segir að Sri hafi verið í, ásamt grjóti og kúbeini, sem Hákon notaði þegar hann varð Sri að bana eftir átök á heimili hans í Stórholti sunnudaginn fjórða júlí. Það fór ekki á milli mála á vettvangi í gær að björgunarmenn voru hissa á því að sjór hafi ekki flætt að því svæði þar sem Hákon segist hafa varpað pokanum fram af klettum í Hofsvík. Aðgerðinni var frestað fyrir nokkrum dögum vegna veðurs, auk þess sem sjávarföll og aðrar aðstæður voru sagðar eins líkar og hægt væri í gær. Háfjara var um klukkan eitt í gær í Hofsvíkinni við Kjalarnes og var pokanum kastað út klukkan 14:20. Einum og hálfum tíma síðar flæddi yfir pokann. Í pokann var fest bauja svo hægt væri að fylgjast með reki hans frá björgunarskipinu Ásgrími S. Björnssyni. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu rétt fyrir hádegi hafði pokinn ekkert hreyfst en áætlað hafði verið að fylgjast með hugsanlegu reki hans í tólf tíma. Nú er liðinn tæpur sólarhringur frá því að aðgerðin hófst. Valgeir Elíasson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að niðurstöður prófunarinnar verði teknar saman í dag og sendar lögreglunni. Hvort þær niðurstöður breyti einhverju um rannsóknina eða sýn manna á framburð Hákonar verður tíminn að leiða í ljós en ekki náðist stjórnendur lögreglurannsóknarinnar fyrir hádegi.
Fréttir Innlent Mest lesið Ísraelar gera loftárásir á Katar Erlent Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Erlent Gefa grænt ljós á handtökur á grundvelli kynþáttar og málnotkunar Erlent Opinbera bréf Trumps til Epsteins Erlent Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Innlent Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Innlent Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Innlent Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Innlent Verið ættleiddur af Íslendingum Innlent Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Innlent Fleiri fréttir Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Ríkisstjórnin sýnir á spilin og Alþingi sett í dag Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Gagnrýnir hæstu ríkisútgjöld sögunnar í fjárlagafrumvarpi Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Reyksprengju kastað inn á pall í Hafnarfirði Verið ættleiddur af Íslendingum Fyrsti dagur Kvikmyndaskólans: „Það besta sem hefur gerst fyrir skólann síðan í apríl“ Hækka hámarksgreiðslur um hundrað þúsund krónur Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Tveir fluttir til aðhlynningar eftir árekstur á Suðurlandsvegi Tekist á um fjárlög, lykkjumálið og aleigan í rafmynt Einn bílstjóri án leyfis og skráningar „Sultaról rithöfunda enn hert“ í fjárlögum Óásættanlegt að almennir starfsmenn séu beittir óeðlilegum þrýstingi Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Skjálfti upp á 3,3 í Vatnafjöllum Afnemur æviskipanir varasaksóknara eftir mál Helga Magnúsar Gul úrkomuviðvörun á Austfjörðum og á Suðausturlandi Gestur Guðmundsson er látinn Breski sundkappinn kominn í land og lofsyngur Íslendinga Sjá meira