Ragnar úrskurðaður í gæsluvarðhald 3. ágúst 2004 00:01
Tælensk yfirvöld framseldu um helgina Ragnar Sigurjónsson, fyrrverandi skreiðarútflytjanda, sem hvarf sporlaust fyrir fimm árum, og hefur hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald hér á landi. Ragnar, sem nú er 62 ára var á sínum tíma sölustjóri í Sjávarafurðadeild Sambandsins og sá þar meðal annars um útflutning á þurrkuðum þorskhausum til Nígeríu. Síðan stofnaði hann eigið fyrirtæki, Eyfell, og hélt þeirra starfsemi áfram. Í þeim viðskiptum kom upp eitthvað misjafnt og hófust réttarhöld yfir Ragnari í mars árið 1999. Hann mætti tvisvar fyrir dóm, en nokkru áður en hann átti að mæta í þriðja skiptið, eða annan apríl, fór hann til London og hvarf svo þaðan sporlaust og hafði ekkert samband. Vegna málsins var hann eftirlýstur af Interpol. Fréttastofunni er kunnugt um Íslendinga, sem lengi hafa vitað að hann var í Tælandi en einhverra hluta vegna gekk aldrei upp að fá hann framseldan fyrr, en nýverið var hann settur í fangelsi þar fyrir smáþjófnað. Úr þeirri vist var honum svo vísað úr landi með óformlegum hætti og kom hann hingað til lands á sunnudag í fylgd íslenskra lögreguþjóna frá Ríkislögreglustjóra. Í Héraðsdómi Reykjaness var hann svo í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. þessa mánaðar og hefur hann þegar áfrýjað þeim úrskurði til Hæstaréttar.
Fréttir Innlent Mest lesið Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Erlent Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Innlent „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Innlent 109 látnir og yfir 160 saknað Erlent Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Rúmlega 200 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Sjá meira