Kommúnistar yngja upp 19. september 2004 00:01
Yngri kynslóð hefur nú tekið við völdum í kínverska kommúnistaflokknum, en Jiang Zemin lét af síðasta embættinu sem hann gegndi í morgun. Lítið er vitað um eftirmanninn Hu Jintao, sem er nú valdamesti maður Kína. Jiang Zemin hætti í morgun sem yfirmaður kínverska hersins, en það er síðasta staðan sem hann gegndi innan kínverska kommúnistaflokksins. Á síðasta ári hætti hann sem forseti og sem flokksformaður ári fyrr. Ekki hafði verið búist við því að Jiang myndi hverfa af sjónarsviðinu strax, heldur var gert ráð fyrir því að hann héldi í síðasta embættið til 2007. Fréttaskýrendur segja að vaxandi þrýstingur hafi verið á Jiang að fylgja fordæmi Dengs Sjaopíngs og draga sig í hlé innan tveggja ára frá því að hann hætti sem flokksformaður. Að auki er heilsufar Jiangs sagt bágt, en hann er 78 ára gamall. Einnig hefur gætt nokkurar óvildar á milli hans og eftirmannsins Hus Jintaos, og er það einnig talið hafa skipt nokkru. Hu, sem tilheyrir yngri kynslóð flokksins, er aðeins 61 árs, tók við af Jiang sem yfirmaður hersins. Allsherjarfundur miðstjórnar kommúnistaflokksins stendur nú yfir í Peking, og þar var gengið formlega frá því að Hu yrði æðsti og valdamesti maður flokksins. Hann er því formaður flokksins, forseti landsins og yfirmaður hersins. Lítið er vitað um Hú, þó að hann hafi róið að því öllum árum í tíu ár að komast á tind stjórnmálanna í Kína. Vitað er að hann er dansáhugamaður mikill og hefur gaman að borðtennis. Hann er einnig sagður hafa ljósmyndaminni. Sumir stjórnmálaskýrendur segja að hann sé harðlínumaður, aðrir telja hann sýna hófsama takta, til að mynda er sagt að hann íhugi að auka fjölmiðlafrelsi, gera endurbætur á réttarkerfinu og taka á spillingu.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Sjá meira